Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Page 7

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Page 7
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 181 andstyggð frönsku þjóðarinnar, hurfu á brott í fylgd sinna þýzku húsbænda, án þess að vera þess megnugir að veita minnstu mót- spyrnu og án þess að þeirra sæjust nokkur merki. Leyfið mér í þessu sambandi að segja ykkur skrítlu, sem er í senn smellin og táknræn. Hin svonefnda Vichy-stjórn hafði í byrjun ársins 1943 kunngert með miklum bægslagangi stofnun nýrrar herdeildar, sem hlaut hið íburðarmikla nafn, Fyrsta herdeild Frakklands. Þið munið það vafa- laust, að hinn svokallaði vopnahlés-her — þ. e. a. s. það, sem Þjóð- verjar skildu eftir af franska hernum 1940 — hafði verið leystur harkalega upp 11. nóvember 1942, þegar svæðið, sem þangað til hafði verið kallað frjálst, var hernumið. I þessa Fyrstu herdeild Frakklands — það er næstum óþarfi að taka það fram — hafði verið valið af stökustu kostgæfni. Þar sem borgaralögreglan og herlögregl- an þótti næsta ótrygg, þá átti þessi herdeild að vera stofnendum sínum eins konar æðsti vörður. Nú er svo sagt, að þá er innrás bandamanna kom, hafi Laval hugsað sér að kveðja hina rómuðu herdeild til vopna. En foringi hennar benti á ýmsa annmarka, sem á því væru. „Það eru svo margir í orlofi,“ sagði hann. „Kallið þá að heiman,“ sagði Laval. „En,“ hélt foringinn áfram, vandræða- legur, „þeir eru gengnir í lið með skæruliðunum.“ Hægt væri að tína til ýmislegt fleira, sem mundi sýna algert getu- leysi þeirra, sem tókst svo lengi að slá ryki í augu útlendingum, sem ekki voru nógu kunnugir málavöxtum. En sleppum því. Þegar hin fáránlega nazista-spilaborg, sem hrófað hafði verið upp á franskri jörð, var að hrynja til grunna á hinn aumkunarverðasta hátt, settist að í höfuðborginni sú sanna franska stjórn, sú eina, sem franska þjóðin vildi þýðast, bráðabirgðastjórn franska lýð- veldisins með de Gaulle hershöfðingja í forsæti. Þið hljótið að vita, af hvílíkum guðmóði Frakkar fögnuðu þeim manni, sem frá því í júní 1940 hafði verið ímynd ættjarðarinnar, sem nú var hrjáð og hrelld, en þó stolt og trú sínu innsta eðli. Aðkoman hjá stjórn de Gaulles hershöfðingja var köld. Um það tala nokkrar tölur skýrustu máli. 135.000 hermenn höfðu fallið á árunum 1939 og 1940; 1. 180.000 fangar voru í Þýzkalandi; um 50.000 gislar höfðu verið teknir af lífi; 100.000 menn höfðu dáið í fangelsum og fangabúðum; ein miljón barna hafði dáið hungur-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.