Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Side 31

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Side 31
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 205 skipa t. d. svo fyrir, að hver kýr skuli að minnsta kosti einu sinni á mánuði ganga undir dýralæknisskoðun. Ef sjúkdómur finnst, sem spillir mjólkinni, verður ekki aðeins sjúklingurinn, heldur kúabúið allt að hlíta sérstökum ráðstöfunum og mjólkursala fær ekki að halda áfram frá búinu nema ströngum skilyrðum sé fullnægt. Hverj- um mjólkurbónda ber að hlíta fyrirskipunum dýralækuis um fóðrun og hirðingu nautpeningsins. Um birtu og loftræstingu fjóssins eru sérstakar reglur, sömuleiðis nákvæm fyrirmæli um hreinsun fjóss- ins. Til dæmis er algerð ræstun, þvottur fjóssins hátt og lágt, fyrir- skipuð tvisvar á ári, og skal fjósið að lokinni hreingerningu borið kalkupplausn. Ekki má selja mjólk úr kúm með flórlæri, enda þótt aðeins sé um að ræða þurra klepra, reglur settar um klippingu kúnna tvisvar á ári. Ennfremur nákvæmar reglur um þrifnað við mjaltir, sem ekki er hægt að líkja við annað en þrifnað þann, sem læknar hafa um hönd á lækningastofum; loks um alla meðferð mjólkurinnar frá því hún er dregin úr kúnum, þar á meðal for- skriftir um hreinlæti og sótthreinsun í búri þar sem mjólkin er geymd, unz hún er send á markað. Nú dettur mér ekki í hug að efast um, að til séu íslenzk kúabú, sem gæta sæmilega hreinlætis um meðferð mjólkur, en tveir þekktir læknar, sem gerðu hér hreinlætisrannsókn á mjólk, fundu, að það gerlainnihald, sem stafar af skarni í mjólkinni (kólíbakteríur) er 20 hér á móti 1 í Danmörku. Nú er það að vísu ekki endilega lífs- hættulegt að éta skít, en ef hlutfallið er rétt, þá er þetta helzti mikill munur á þrifnaði í tveim löndum og virðist benda til þess, að við íslendingar eigum lilla samstöðu með Norðurlandamönnum. Amerikumaður sagði við íslending, er þeir gengu saman á götu hér í sumar, og mættu fólki með fötur og opnar könnur: Hjá okkur er bannað að selja mjólk öðruvísi en í lokuðum flöskum. íslendingurinn: Hjá okkur er bannað að selja mjólk á flöskum. Sú pólitíska afturhaldsklíka, sem hér ræður yfir mjólk, gerði heyrinkunnugt fyrir nokkrum árum, að ekki væri hægt í allri Ame- riku að útvega lok á mjólkurflöskur, og fékk sett bann við því, að mjólk væri afgreidd hér með þeim aðferðum, sem alstaðar eru hafð- ar í siðuðum löndum. Þetta er að vísu allótrúleg saga um land mjólkurflöskulokanna, enda skýrði heildsali nokkur í Reykjavik frá
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.