Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Síða 72

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Síða 72
246 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR milli upphafs og niðurlags. Eftirfarandi heillaósk hefur verið birt í ljóðabók sem lofuð var í blöðunum: Ætti eg ráð á alls kyns gæðum, eins eg bæði af klökku hjarta: Gefi ykkur guð á hæðum gleði mikla og framtíð bjarta. Ef skáldið ætti ráð á alls kyns gæðum, væri honum innan handar að ráðstafa þeim sjálfur, og óþörf krókaleið að biðja guð að gefa þau. Hins vegar er það ekkert skilyrði til að biðja guð að maður eigi ráð á alls kyns gæðum. Jafnvel allslausir menn geta beðið guð, og gott hvort þeir hafa ekki einmitt verið bænheitastir allra. Sérhver íslenzkur ljóðasmiður mun minnast einhverra atvika þegar stuðlar og rím hafa knúið hann til að komast öðruvísi að orði en hann hefði helzt kosið, nota miðlungi gott orð í stað hins bezta. Þess mun jafnvel mega finna dæmi að skáld hafi látið stuðla teygja sig til að fullyrða það sem þau vildu í raun og veru aldrei sagt hafa. Mér þykir líklegt að séra Matthías Jochumsson hafi verið í tölu þeirra manna sem sárast hafi fundið til umkomuleysis og einstæðingsskapar íslenzku þjóðarinnar. „Eitt er landið ægi girt yzt á Ránar slóðum, fyrir löngu lítils virt, langt frá öðrum þjóðum. Um þess kjör og aldarfar aðrir hægt sér láta, sykki það í myrkan mar mundu fáir gráta“. Enginn þarf að ímynda sér að höfundur þessa raunalega erindis hafi gert sér háar hugmyndir um veg ís- lendinga í öðrum löndum. En hvað skeður? Séra Matthías þýðir kvæði Grundtvigs um móðurmálið og snýr því upp á íslenzku, og þá bregður skyndilega svo við að tungumál hins ægi girta lítilsvirta lands er orðið frægast í heimi: Móðurmál vort við fossa og fjöll, þín frægð ber af sérhverri tungu. Séra Matthías vissi ofboð vel að frægð íslenzkunnar er sú að hana tala um 100 000 manna, og í mesta lagi aðrar 100 000 vita að hún er til. En hér þurfti / í höfuðstaf, og skáldið sagði vísvitandi stór- kostleg ósannindi. Eða ef til vill reyndi hann að friða samvizku sina með því að frægð og ágæti væru náskyld hugtök, og mætti því nota orðið sem almennt lofsyrði. Fullyrðingin væri samt í hæpnasta lagi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.