Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Side 91

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Side 91
SKÚLI GUÐJÓNSSON: Lifandi tunga eða dautt mál? „Hinir útvöldu og fólkið" Það er rótgróin trú meðal alþýðu, að einungis hámenntaðir menn, gæddir mikilli snilligáfu, séu þess umkomnir að rita tungu þjóðarinnar svo, að viðunandi sé. Þegar lítt menntaðir, andsnauðir menn tapa trúnni á eigin van- mátt í svo stórum stíl, að þeir taka sér penna í hönd og færa í letur það, sem þeim liggur efst í huga, er venjulega litið á slíkt sem væga tegund geðbilunar. Það er ekki að ófyrirsynju, að þessi trú er orðin svo rótgróin sem raun ber vitni. Blaðamenn, fræðimenn og rithöfundar hafa þegar tekið að sér að færa í letur allt, sem fólk þarf að lesa, — og jafnvel mikið meira. Væri það þá ekki að bæta gráu ofan á svart, — nokkurs konar ó- heiðarleg samkeppni við andans menn, — ef alþýðan færi að troða því, sem henni lægi á hjarta, inn í blöð og bækur, sem þegar eru orðin svo full, að út úr flóir? Algengasta lesning fólks nú á dögum eru blöðin. Blaðamenn rita vfirleitt á þá lund, að enginn góðfús lesari efast um, að þeir viti alla hluti. Frómir og hrekklausir skoðanabræður þeirra teyga í sig, líkt og spenvolga nýmjólk, allt sem þeir láta á þrykk út ganga. Það getur hver og einn stungið hendinni í eigin barm og athugað, hvort slíkt er ekki þægilegra en að berjast við grufl upp á eigin býti. í annan stað skrifa fræðimenn stórar og þykkar bækur um allt, sem fólk þarf að vita deili á, ef það á að vera menntað og vel upp- lýst. Eigi fræðibók að vera góð og veigamikil, þarf hún að vera „þung aflestrar“, þ. e. a. s., lesandinn verður að beita öllum lífs og sálar kröftum, — líkt og hann væri að vaða klofdjúpan snjó, — meðan hann er að þrælast gegnum hana. Hver alþýðumaður sér það eins og svart á hvítu, að slíkar bækur myndi hann aldrei geta skrif- að, þó ekki væri nema vegna þess, að málið á þeim er svo ólíkt því máli, sem hann talar, að það er nærri því eins og annað tungumál.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.