Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Page 94

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Page 94
268 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Það er sannfæring mín, sem ég, af skiljanlegum ástæðum, vil ekki rökræða, að í einkabréfum alþýðufólks, þeim er rituð eru í hjartans trúnaði, myndi margt það finnast, sem kallað yrði „sígild Iist“, ef það sæist á prenti í verkum frægra rithöfunda. Þegar öll kurl kæmu til grafar, myndi kannske hið fornkveðna sannast víðar en margan grunar: Guð opinberar það smælingjum, sem vitringum er hulið. „Sjó, saklaus er ég"------ Nú munu menn spyrja: En veiztu þá ekki, maður minn, að málfari fólksins er alltaf að hraka? Fyndist þér ekki, að skörin tæki að færast upp í bekkinn, ef farið yrði að taka það til fyrirmyndar ritmáli? Jú, mikið rétt. Það hefur nú mátt sjá minna grand í mat sínum en málvöndunaræðið, sem gengið hefur yfir þetta vesala land, líkt og Finnagaldur eða Kiljanshatur. Við skulum láta það liggja á milli hluta, hvort málfar fólksins er komið jafnnálægt glötunarinnar barmi sem málvöndunarmenn- irnir vilja vera láta. En ef svo er, verður að skrifa mestan hluta þeirrar spillingar á reikning þeirra, sem rita fyrir fólkið. Það liggur í augum uppi, ef málfar alþýðu spillist í réttu hlutfalli við vaxandi áhrif bóka og blaða, hlýtur eitthvert samband að vera þar á milli. Við skulum fyrst athuga blöðin. Hvert blað hefur sinn slagorðaforða. í hvert skipti sem blað kemur út, er slagorðunum raðað upp, líkt og leikfangakubbum, með dálítið mismunandi hætti. Þetta sköpunarverk ber svo hið yfirlætis- lausa nafn: Leiðari. Sennilega er það valið með hliðsjón af því, að því er ætlað að leiða villuráfandi lesanda í allan sannleika. Mér er nær að halda, að með nokkurri æfingu megi þekkja það á mæli manna, hvaða tegund leiðara þeir lesa aðallega og taka ástfóstri við. Ég hef dálítið gluggað að því, hversu þessu er háttað, þar sem ég þekki til. Ég umgengst aðallega fólk, sem les eina tegund leiðara. Þegar það rabbar saman um daginn og veginn, talar það hið upprunalega mál sveitafólksins, tært og ómengað. Fari það aftur á móti að velta
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.