Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Page 103
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
277
fólgin er í frumeindum efnisins. Ef menn kynnu aS hagnýta sér
bana, þyrfti ekki lengra að leita. En það kunna menn ekki ennþá,
og alveg er óvíst, aS þeim lærist þaS á næstunni, þó aS tvímæla-
laust muni aS því reka einhvern tíma.
Onnur orkulind ótæmandi, sem öllum mönnum er kunn úr dag-
legri reynslu, er sólskiniS. Frá sólinni stafar allri þeirri miklu orku,
sem kemur fram í vindum og sjávargangi, fljótum og fossum, allri
vaxtar- og starfsorku jurta og dýra. Orka sú, sem sólargeislarnir
bera jörSinni á sólarhring hverjum, jafngildir þeirri orku, sem
fengist meS því aS brenna 500 miljörSum eSa hálfri biljón smá-
lesta af kolum. A hverja ekru lands fellur á sólbjörtum degi næg
geislaorka til aS reka 7000 hestafla vél. Gallinn á þessari orku er
sá, hversu dreift hún fellur, þótt mikil sé, en þaS torveldar hagnýt-
ingu hennar. Menn hafa hugsaS upp ýmis ráS til aS safna þeirri
sólarorku, sem fellur á tiltekiS svæSi, á tiltölulega lítinn flöt, svo aS
hægt væri aS vinna úr henni verSmætt vélaafl. Frumhugmyndin
hefur oftast veriS sú aS láta gríSarmikla spegla beina sólargeislun-
um í einn brennidepil. En orkunýtni slíkra tækja hefur yfirleitt ekki
reynzt nógu mikil.
Háskólakennari einn í Bandaríkjunum, Hottel aS nafni, hefur
lagt fram þá hugmynd, aS grafiS verSi stórt stöSuvatn og botn
þess og aflíSandi barmar lagSir svörtu malbiki. Botninn mundi
halda eftir svo miklum varma, er sólin skini á hann, aS vatniS hitn-
aSi langt yfir suSumark, og mætti þá láta hitaorkuna snúa gufu-
straumhjóli. Á þennan hátt mætti tvímælalaust vinna mikla orku
úr sólskininu. En samkvæmt útreikningum virSist kostnaSurinn viS
fyrirtækiS ekki mundu verSa meiri en svo, aS ávinningurinn mundi
svara honum. Þó er hér svo mjótt á mununum, aS enginn hefur enn-
þá fengizt til aS leggja fjármagn í þessa tilraun.
Rússneskir vísindamenn hafa tekiS þetta viSfangsefni til athug-
unar frá nokkuS öSru sjónarmiSi. Fyrir tveim árum fór flokkur
þeirra í rannsóknarleiSangur upp á Fedsjenko-skriSjökulinn í Pam-
írfjöllum í MiS-Asíu. Vísindamenn þessir komust aS þeirri niSur-
stöSu, aS FedsjenkoskriSjökulIinn væri í rauninni hin ágætasta og
mikilvirkasta sólarorkuvél, sem völ væri á. Upp af ám og vötnum
og ótölulegum grúa jurtanna í hinum miklu frumskógum Indlands