Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Side 117

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Side 117
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 291 sem — Jæja, hún átti þá, og það yrði engin þraut fyrir hana að lána honum. Maður fær þá að láni hjá henni, horgar það einhvern- tíma .... Hún hafði komið þessu af stað .... alveg eins gott hún sæi, hvað úr því yrði. Treisi hló, strauk lófanum yfir andlitið, andvarpaði. Alveg eins gott að fara inn .... ljúka því. Hann kastaði sígarettunni. Einn . .. .tveir .... þrír .... fjórir .... snú. Einn .... tveir .... þrír .... fjórir .... snú. Einn .... Guð minn góður! Hvað hafði komið honum til að hugsa um þetta? Þegar öllu var á botninn hvolft, hafði hann ekki gert neitt glæpsamlegt, aldrei verið í tukthúsi — aldrei drepið mann — aldrei rænt banka. Hversvegna allt þetta umstang? Hvað hafði hann eiginlega gert núna, sem hafði ætlað að ríða móður hans að fullu? Pabbi talaði um það um daginn og horfði á hann, eins og þetta væri allt honum að kenna. Mamma hans — að reyna allt þetta. Maðui gæti haldið af tali þeirra, að hann hefði eytt ævinni í að gera henni lífið óbærilegt, einmitt þegar hún var að komast úr barneign. Hversvegna í andskotanum allt þetta rósamál? Hversvegna kemur það ekki til manns og segir hvað það meinar? Æ . . . . maður æsir sig upp út af engu. Pabbi meinti kannski ekkert með spaugi sínu. Það væri bezt fyrir hann að fara inn núna og tala við mömmu, áður en hún slekkur hjá sér. Útkljá allt á morgun. Gleymt og graf- ið. Hann fleygði sígarettunni, steig ofan á hana, fór inn. Treisi drap á dyrnar, opnaði þær hægt. Móðir hans var að greiða sér. „Má ég koma innfyrir?“ Holdugur, hvítur handleggur hennar hreyfðist fram og aftur í skugganum, gráblá ermin á sloppnum hennar féll niður fyrir oln- bogann. Föt mömmu voru nákvæmlega rétt valin. íburðarlaus. Rétt valin. Gaman að vita, hvernig Dóra mundi velja sín. Allrahanda leggingar. Já, hún mundi vera með allrahanda leggingar. „Pabbi úti?“ „Hjá henni frú Reid gömlu.“ Það er gott. Þægilegra að tala hér en niðri. „Heldurðu ekki hann
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.