Tímarit Máls og menningar - 01.12.1944, Síða 122
296
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Fyrirgefið ýmislegt!
Treisi snerist á hæli, gekk út úr stofunni. Beygði inn á troðinn
stíg, svo kunnuglegan, svo þægilegan að ganga eftir, að það var
eins og hann stæði kyrr, þegar hann fór hann. Tunglið var hátt
á lofti, en hann sá hvorki þústur liúsanna, síðförula vegfarendur,
trén né sandinn fremur en í niðamyrkri. Blindur gagnvart Maxvell
og slúðri hennar skragglaðist hann áfram, hugsaði aðeins um eitt
núna, hugsaði aðeins um það, sem beið hans handan stigsins. Hún
mundi vera þar. Hún mundi vera þar og bíða, Allt lagaðist af
sjálfu sér í skjótri svipan, eins og maður hefði vaknað af martröð
og fundið sjálfan sig eftir andartaks bið í myrkrinu og húsgögnin
í stofunni, eitt eftir annað. í návist Nonní mundi það verða þannig.
Það hafði alltaf verið þannig. Það mundi verða þannig núna.
Skrýtið .... hvernig svona hlutir gátu verið. Hvernig þú gazt
farið til hennar aftur og aftur, hara til að tala um eitthvað, og að
tala um eitthvað veitti þér fróun. Hugsa aldrei um að njóta hennar
.... Manni kemur það aldrei til hugar. Skrýtið., að manni skyldi
detta þetta í hug. Kannski fleira skrýtið við mann — öðru vísi en
við annað hvítt fólk.
Hann staðnasmdist eins og hann hefði villzt. Skær hlátur klingdi
í eyrum hans.
Hann sá, að hann var staddur á troðningnum gegnum gullberja-
runnana, vissi, að hann var að hlusta á raddir, sem voru of langt í
burtu til þess hægt væri að greina orðin. Gus og strákarnir. Koma
úr drykkjukránni hak við kirkjuna. Höfðu oft reynt að fá hann,
Harrisstrákana og Klemm Mossei til að koma þangað. Þeir höfðu
aldrei farið. Aldrei ráðið það við sig, aldrei hugsað mikið um
það. Hafði ekkert langað til að fara. Hann stóð á stutta troðningn-
urn, sem lá eins og þráður milli Hvíta-Bæjar og Svarta-Btejar,
kominn hálfa leið yfir graslendið. Þeir hljóta að fara fyrir framan
gömlu kirkjuna. Þeir mundu mætast við karfatjörnina. Hinir of-
mettu og hinir hungruðu. Þegar þessir fara, látum aðra koma.
Hann hló hátt. Að baki hans Hvíti-Bær. Að baki hans hvítar
konur. Allar hvítar konur í heiminum. Jú .... þær binda um þig
ást sína eins og mjóan vír og toga í, halda áfram að toga í, þangað
til þú ert kominn í tvennt. Það er það, sem þær gera. Þarna hinum