Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 26
206
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
þetta meðan livað eina vantar: greiðlesna texta, samanburð hand-
rita, efnisyfirlit og registur. Allrafyrsta verkið sqm vinna þarf er að
gera skrár. Handritaskrár bókasafnanna segja að vísu til um hin
meiri háttar verk, og rímnaskrá hefur lengi verið í smíðum þótt
óprentuð sé enn. En kvæðaskrá er engin til nýtileg, hvorki prentuð
né óprentuð. Einu sinni stakk ég upp á því að hafin yrði rannsókn
á þessum ókjörum kvæða sem handritin geyrna, og lagði til að há-
skólinn greiddi smátt og smátt þeim íslenzkunemum sínum sem
skrifandi væru eitthvert gjald til að búa til spjaldskrár þar sem fá
mætti fyrstu vitneskju um atriði eins og fundarstaði kvæðanna, upp-
höf, erindafjölda, efni og höfund ef nafngreindur væri. Undirtektir
urðu engar, enda var þess varla von (tillagan kom fram í Eimreið-
inni). Síðar hef ég sjálfur, mér til gamans og hugarhægðar, gert því-
lika spjaldskrá yfir efni allmargra kvæðahandrita, og þó harla fárra
miðað við allan þann grúa sem til er í söfnum; en þetta getur aldrei
orðið eins manns verk, nema hann gæti þá varið til þess öllum tíma
sínum árum saman. En ég fæ ekki betur séð en svona skrá sé alveg
óhjákvæmileg. Og það er óhjákvæmilegt að halda lengra. Við verð-
um að eignast kveðskap og aðrar bókmenntir þessa tíðarskeiðs í
einhverri læsilegri og nokkurn veginn aðgengilegri mynd. Við verð-
um að fá grundvöll undir rannsóknir og eignast einhverja sérfræð-
inga í ritsmíðum þessara myrku alda, ef við ætlum ekki að una við
að tímabil þegar margt var samið og mikið ort standi í bókmennta-
sögunni eins og opið gímald. Idins vegar hlýtur hverjum kunnugum
að ofbjóða að hugsa til prentunar á þessum kynstrum. Því að það
er á allra vitorði að þó að þessar bókmenntir séu einkennilegar og
merkilegar á sína vísu og eigendum þeirra ekki sæmandi að láta þær
liggja vanhirtar, þá eru þær á engan hátt hávaxnar né glæsilegar.
Hugarheimurinn er okkur annarlegur, skáldskapurinn yfirleitt úr-
eltur og á ekki erindi til fólks lengur, nema dálítið úrval; og við
þurfum í mörg horn að líta í menningarbaráttu okkar. Mér hefur þá
flogið í hug hvort ekki mundi hagfelldast að byrja á því að gera
„óprentaðar útgáfur“, í líkingu við það sem gert var hér í Kaup-
mannahöfn fyrir 70 árurn við kvæði Færeyinga. Þá mætti vélrita í
nokkurum eintökum aðaltexta, ef tiltök væru með helzta orðamun
annarra handrita, þannig að eintök gætu orðið til á fáeinum bóka-