Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Blaðsíða 47

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Blaðsíða 47
ÞÝÐING í ÓBUNDIÐ MÁL Norska skáldið ARNULF 0V ERLAND jlutti kvœðið hér að jraman við setningu háskólans í Osló 2. sept. í haust. Hliðin eru aítur opin að þessu heilaga húsi! Brjóst vor hefjast við hátíða- braginn og lofgerðarhljóminn. Loftið er þrungið loforðum, himinninn hár af vonum, aftur eru hugirnir opnir, opnir orðsins skírn. Heilagur, heilagur er sannleikurinn, og frómhjartaður sá er leitar í eigin huga sínum, í hverfulu hjómi, eða í eilífð stjörnudjúpsins. Myrkur var dagurinn. Vér byrgðum gluggana, vér skriðum í jörð niður, vér földum oss. Oss var boðið að drekka úr eitruðum brunni; og hver sá sem neitaði því hlaut hlekki að launum. Tryggð vor varðaði við lög, oss var varnað má!s; en lygin kyrkti sjálfa sig og er ekki lengur. Finndu, hvílík hamingja það er að mega anda frjáls, finndu hve lífið er orðið hreint og tálmunarlaust! Og í dag hefur þú eignazt það! Hliðin standa aftur opin, í dag erum vér komin heim. Vér gleymum ekki þeim sem féllu í stríði fólksins. En einmitt vegna þess að vér gáfumst ekki upp í myrkrinu, þorum vér að horfa fram! Æska, gakktu inn! Ennþá einu sinni getur þú fylkt þér um kennarastólinn. Vér höfum endurheimt það ljós sem aldrei skal verða byrgt framar, hversu miklar fórnir sem það kann að kosta, og hvað sem verða kann. Vér þurfum ekki lengur að fálma í blindni, ekki lengur að byggja á kvik- syndi. — Að loka augunum fyrir þekkingunni er dauðasynd. En að varðveita svo hugsan sína, að hún sé vakandi, hrein og sönn, það er hymingarsteinn í voru heilaga húsi. Æska! hingað átt þú að sækja dýrasta arfahlut þinn; en sál sína finnur engin þjóð nema með heiðarlegri baráttu. Það er of lítilmótlegt, of auðvelt að vingsa hreykinn silkiskúfnum, hér er enginn kaupangur andríkra refja, hér verður engum þolað að hafa svik í frammi. Það er innsti kjarni þinnar eigin veru, sem þú átt að verja. Hjarta þitt á einnig að vera heilagur staður, því að það á að vera heimkynni réttsýni og kærleika. Enn að nýju eru hliðin opin frjálsum, eldlegum hugsunum. Þær eiga ekki að þekkja ótta, ekki takmörk. Bjart á að vera yfir Noregi! Lífsafl andans eitt getur tengt oss saman í algeru frelsi. Þess vegna á það að vera starf vort og það markmið er oss ber að keppa að framar öllu: að Noregur lifi, þróist og eflist í ljósi sannleikans!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.