Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Blaðsíða 30

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Blaðsíða 30
210 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR indalega íslenzka orðabók er ná skuli yfir tímabilið frá því er prent- aðar bækur hefjast á íslenzku (1540) þangað til nú. Þetta er djörf og stórfengleg hugmynd. Ennþá er verkið aðeins á fyrsta undir- búningsstigi og vitneskja um það óljós hér. Reynsla utan úr lönd- um sýnir að eigi slíkt fyrirtæki að lánast, veitir ekki af heilli sveit valinna starfsmanna undir gallharðri og einbeittri stjórn. Fáist slík sveit og verði ekki reynt að klípa utan af nauðsynlegum tilkostnaði, má gera sér vonir um að orðabókin verði langl komin undir lok þeirrar aldar sem nú stendur yfir. Þörfin á handorðabók er vita- skuld engu síður knýjandi þótt stórvirki eins og þetta sé á döfinni. Annars má skjóta því inn hér að íslenzkum orðabókaþörfum hefur til þessa veriö skammarlega illa fullnægt nærri því í öllum greinum. Við eigum orðabækur úr dönsku, ensku og þýzku á íslenzku (en enga úr frönsku, að heitið geti). Allar eru þessar bækur smáar og gallaðar, einnig þýzk-íslenzka orðabókin, sem þó er þeirra nýjust og bezt. Það er bráðnauðsynlegt að hafizt verði handa um gerð nýrra og stórum endurbættra oröabóka úr erlendum tungum. Okkur nægja ekki lengur einhver kríli sem aðeins taka upp hrafl úr oröaforð'a málanna, stundum meira að segja með röngum og villandi þýðing- um. Ekki tjáir heldur annað en að viðurkenna þá staðreynd og haga sér eftir henni, að íslenzka er víða steypt í öðru móti en meginlands- málið, svo að oft er vonlaust að setja sér það mark að þýða orð með orði, heldur verður að sýna mörg mismunandi dæmi þar sem um- skiptilegar þýðingar eiga við. Efniviðurinn í rannsókn íslenzks máls fyrr á öldum er geysi- mikill og enn ekki hagnýttur nema að litlu leyti. Fjöldi margvís- legra gagna bíður þar könnunar áður en grundvöllur sé lagður að þeirri sögu tungunnar sem okkur hlýtur að dreyma um við lilið bókmenntasögunnar. Hér skal ekki fariö frekara út í þá sálma. En eitt er það verk, sem enga bið þolir og hvergi verÖur unnið nema á íslandi sjálfu, og það er könnun íslenzks málfars eins og það er nú í dag í mismunandi landshlutum. Það er segin saga í öllum löndum að þar sem kontin er skólafræösla og útvarp og ferðalög og þeys- ingur, taka héraðasérkenni í máli óSum að hverfa og allt verður að einum sambreyskingi. Víðs vegar um landið þarf að leita uppi gam- alt fólk, helzt það sem lengst af hefur haldið sig heima fyrir og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.