Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 39

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 39
HALLDÓR KILJAN LAXNESS: UM MAXÍM GORKÍ Útvarpserindi á tíundu ártíð lians, 18. júní, 1945 Eg hef ekki viljað láta hjá líða með öllu að nefna í dag nafn þess manns meðal skálda heimsins, sem átti, altþartil rödd hans brast, fleiri eftirvæntíngarfulla og þakkláta ldustendur víðsvegar á heims- krínglunni en nokkurl annað skáld. Þetta var höfuðskáld öreiga- stéttarinnar rússnesku Maxím Gorkí, sem á síðustu æviárum var jafnt utan síns ættlands sem innan óumdeilanlega orðinn öndvegis- maður í hópi þeirra skálda, sem gert höfðu líf fátækra manna og stríð verkalýðsins að yrkisefni sínu, auk þess sem hann var í hópi mestu listamanna sinnar samtíðar. I dag er tíunda ártíð hans. Það er líka alveg sérstök ástæða til að nefna nafn lians á þessum tíma- mótum, þegar hinir grimmu herir fasista hafa verið lagðir að velli í Evrópu, því það var einmitt Maxím Gorkí, sem á þeim dögum fyrir 10—15 árum, auðkendum af undanlátsemi borgaralegs lýðræðis við fasismann, dögunum meðan þetta stjórnarfyrirkomulag var að festast í sessi víða um lönd, var hrópandans rödd; meira að segja sneri hann að miklu leyti baki við skáldskapnum til að helga líf sitt þeirri baráttu, sem spámannleg skygni lians sagði honum að geingi fyrir öllu öðru, þeirri baráttu sem borgaraleg ríki létu sér þá fátt um finnast, en allur heimurinn hefur á síðan feingið að reyna að ein var nauðsynleg: baráttunni gegn fasismanum. Mikið af starfskröft- um lians síðustu árin fór í að undirbúa hugi verkalýðs og menta- manna, bæði heima hjá honum og svo víðsvegar um lönd, undir það heimsstríð sem veldistaka fasista í Þýzkalandi hlaut að tákna. Maxím Gorkí gerðist — eða réttara sagt varð af sjálfu sér — for- ustumaður hinnar alþjóðlegu hreyfíngar andfasista. Og það var liðs- maður í þessu stríði sem hann var borinn banaráðum af erindrekum fasista innan Sovétrússlands, fimtu herdeildinni rússnesku, sem „gerð var upp“ þar í landi í hinum miklu réttarhöldum gegn blökk
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.