Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 53

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 53
GRAFIÐ LJÓÐ 233 eftir Poe. Ég veit, að kvæðið mitt var ágætt, þótt ég geti ekkert úr því munað. Það er ekki mér að þakka, ég orti það ósjálfrátt. En ég man ennþá hrifninguna, hún var ósvikin, ég hef reynt það á kvæðum annarra. Ég er nú að deyja. Mig langar til að biðja þig bónar. Þessa sögu hef ég engum sagt nema þér, og ég treysti þér. Þótt þú værir ódæll og færir frá okkur, án nokkurs tilefnis að kalla, fannst mér ég skilja þig. Enda brást ég þér ekki. Síður en svo, stundi ég þakksamlega og síundrandi. Þú átt það víst allt að þakka þessu undraveröa kvæði, brosti hann næstum. Einhvers konar samábyrgð lét mig halda verndarhendi yfir þér. Þú fyrirgefur, þótt ég noti verzlunarmálið, mér er það tamast. En bónin er, að þú farir á fund stúlkunnar og fáir hjá henni kvæðið. Ahrif þess og minning stúlkunnar hafa fylgt mér gegnum lífið eins og englar. — Mig langar til að lesa kvæðið áður en ég dey og vita hvernig það er í raun og veru. Nú orðið er það sem eins konar fyrir- heit eftir þrotlaust stríð langrar ævi, það er orðið að meinloku hjá mér að fá að njóta einu sinni enn sömu hrifningarinnar og þá, og helzt deyja í henni. Augu hans voru orðin glóandi, og ég óttaðist, að honum mundi elna sóttin við þessa hræringu geösmunanna. En hvernig átti ég að sefa hann? Þú hefur víst aldrei haldið mig neinn andans mann, liélt hann áfram ögn daprari, enda er ég það ekki, en ég hef þá trú, að í lífi hvers hugsandi manns sé eitthvert háleitt sjómerki, sem gnæfi yfir öldutoppa hversdagsleikans, hjá sumum er það einhver hugsjón til heilla öllu mannkyninu, hjá öðrum eru það börn þeirra, framtíð og fullkonmun. Hjá mér er það þetta Ijóð, sem varð til fyrir mikla ást, að vísu í meinum, en þó jafnréttháa og lagaleg ást. Þig furðar á því, hvernig ég tala, eins og talað er í iila sömdum skáldsögum, eða eins og móðursjúkar konur tala. En þú hefur ekki enn komizt eins nálægt dauðanum og ég. Þegar hann er á næstu stráum, breylist allt, þá hverfa allar reglur og öll feimni. Ég hef ekki kallað þig á minn fund til að tala um hversdagslega hluti, heldur til að biðja þig mikilsverðrar bónar. Og til þess að þú skiljir bón mína, lyfti ég til hliðar tjaldi sálar minnar.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.