Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 57

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 57
GRAKIÐ LJÓÐ 237 urn tíma verið vinnukona á heimili hans. Svo rifjaðist það upp fyrir henni og hún hló. Eg var rekin, sagði hún glettnislega og kærði sig hvergi uin slíka vanvirðu. Mig grunaði, að hún mundi hafa verið vel léttlynd á sín- um sokkabandsárum. Þá var að grafast eftir kvæðinu góða. Það var ekki auðvelt að fá eintal við hana í einrúmi. 011 fjölskyldan, mér liggur við að segja allar fjölskyldurnar, voru saman komnar í stofuholunni og hlustuðu á okkur. Og það var þegar byrjaður skiptafundur á peningum kerl- ingar. Mér tókst að lokka hana út undir húsvegg og tala við hana þar um kvæðið. í upphafi mundi hún ekkert eftir því. Ég hef átt svo mörg börn, afsakaði hún sig. En svo hét hún að leita að því. Hefði hún nokkurn tíma fengið það, hlaut það að vera til. Það virtist ó- hugsandi að nokkrum hlut, sem hún hefði eignazt um ævina, hefði verið fleygt fyrr en búið var að nota hann upp til agna. En verið gat, að einhvern tíma hefði pappírinn verið notaður utan um eitl- hvað, eða til að skrifa á eitthvað þarfara en kvæði. Það fór um mig hrollur. Höfðu ekki stundum hin dýrmætu skinn- handrit okkar verið notuð í skóbætur — eða étin? Ég bað hana að leita í kyrrþei. Ég kærði mig ekki um, að skipta- fundurinn færi að fjalla um málið og virða eignina til peninga. Leitin stóð ekki lengi, eignir hennar voru hvorki miklar né víða. Loks hélt ég á hinu dýrmæta, gulnaða blaði í hendinni og var hálf óstyrkur. Hafði hún lesið kvæðið oft? Kunni hún það? Nei, brosti hún, ég hljóp víst einu sinni yfir það, en las það aldrei framar, mér var þetta ekki eins hátíðlegt og honum, ég var ekki vön því að vera rekin úr vistinni eða fá send ástarkvæði, þótt ég kyssti mann svona í framhjáhlaupi. Hvílíkt happ. Enginn vissi um þetta fagra ástarkvæði, nema ég og skáldið sjálft, sem nú var að deyja. Og ég hafði fengið afsal fyrir þessu dásamlega kvæði og gat talið mig höfund þess. Hugsunin þaut á undan mér til Alþingis og lét það í snatri greiða öll atkvæði með hæstu skáldalaunum mér til handa. Ég gat ekki fengið af mér að lesa kvæðið úti á víðavangi, né heldur í bilnum á leiðinni heim. Til þess þurfti helga stund í ein-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.