Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Page 72

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Page 72
252 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR og niður. Sá, sem af langmestum þrótti talaði fyrir trúarbragða- frelsi, var Gísli Brynjólfsson. Hann hélt snjalla ræðu í málinu, sem enn má lesa sér til ánægju, og er þá auðheyrilega rnikið eftir af frelsismanninum frá 1848. En um bænaskrá Þingeyinga er það að segja, að hún var felld að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu tuttugu nei, en aðeins þrír já. Það voru, auk Gísla, Jón Guðmundsson rit- stjóri Þjóðólfs og Jón Hjaltalín landlæknir. A þessum áruin þegar Gísli sat á þingi, tók að óvingast með hon- um og Jóni Sigurðssyni. Leiddi sú óvinátta til fullkomins fjand- skapar, sem enlist meðan þeir lifðu háðir. Meðal annars deildu þeir hatrammlega í dönskum blöðum, aðallega um íslenzk stjórnmál, og er það sannast sagna, að Gísli varð hinum íslenzka málstað mjög ó- þarfur maður. Út af þessum vopnaskiptum lögðu margir íslendingar fæð mikla á Gísla. Vinir og samherjar Jóns Sigurðssonar voru honum æva- reiðir, töldu hann liðhlaupa og svikara, og íslenzkir námsmenn í Kaupmannahöfn forðuðust hann flestir líkt og skæðan sýkil. Þegar Gísli fékk loks kennaraembætti í íslenzkri sögu og bókinenntum við Hafnarháskóla árið 1874, var á það litið sem umbun fyrir svikin. Af þessum sökum öllum fjarlægðist Gisli landa sína, gerðist ein- rænn og stirður í skapi. Þó kemur það fram í bréfum hans nokkr- um, sem til eru, að undir hinni hversdagslegu grímu og hraunskorp- unni á ytra borði, logaði í gömlum kolum, — glæðunum frá frels- iseldi æskuáranna. Hinn 18. júlí 1866 skrifar Gísli Jóni háyfirdóm- ara Péturssyni á þessa leið: „Margt hefur nú við borið síðan ég seinast skrifaði yður, og það heldur stórkostlegt, því á þeim stutta tíma hefur sex hundruð ára gamalt keisararíki verið eyðilagt með undarlegum hraða og snar- ræði. Þetta var að vísu maklegt, en þó ber slíkt ei oft við, og er nú vonandi, að allt fari héðan af að snúast til batnaðar í Norðurálf- unni, ef Habsborgarætt verður svipt þeim völdum, sem hún hefur aldrei brúkað nema til ills, og hefur henni þó haldizt það uppi nógu lengi. En einhvern tíma verður þó öll lygi að hafa enda og sannleiki og alvara að byrja að komast fram; það lítur nú út sem þessi tími sé kominn þar fyrir sunnan, ég vildi, að sama mætti segja hjá okkur á íslandi og hér, en þar er ég því miður hræddur um að hégóma-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.