Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Page 21

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Page 21
HALLDÓR STEFÁNSSON SEXTUGUR 227 agaða stíl segja orðin oft annað en það sem þau tákna; í sumum mann- lýsíngum hans er sem hann noti þau í öfugri merkíngu: þegar hann á við heitt þá segir hann kalt. Það er einsog spiluð sé nóló á grandspil. Til eru þeir sem segja að Halldór kappkosti að lýsa sem ómerkilegustu fólki; en kunni maður stafróf hans, sést að honum þykir fólk þetta mjög merkilegt, og merkilegra en alt annað fólk, svo merkilegt að ekki annað fólk verðskuldi umræðu á prenti; frásagnarhátturinn er aðeins aðferð höfundar til þess að deya ekki úr meðaumkvun með mönnum, einsog Nietzsche segir að guð hafi gert. Þessi leikur öfugra forteikna, þar sem orðin breyta gildi einsog spil eftir því hvað sagt er á þau, þannig að ásarnir eru þegar minst varir orðnir lægstir og hrökin pamfílar, og hern- aðarsaga blinda mannsins er óvart orðin miklu stórkostlegri en segj- um til dæmis hernaðarsaga Karls tólfta, — mér þætti ekki ólíklegt þó slíkur leikur væri svar listamannsins við þeim álögum að þurfa sérhvern morgun ævi sinnar að fara í bánka, rísa til að heilsa óvini köllunar sinnar. Og þá hefur enn sannast alkunn frönsk fornsaga heilög, að jafnvel hinar ólíklegustu leiðir liggja til Vorrar Frú; einnig sú að stefna í brott frá henni. Meira að segja það að vinna í bánka getur gert mann gullsígildi bæði að skapgerð og snilli, aungusíður en vera kvæntur brjálaðri konu. Að minsta kosti held ég telja megi á fíngrum annarrar handar þá ísléndínga er náð hafa að gera smásögur eins vel og Halldór Stefánsson, síðan þá höfunda leið er á þrettándu öld settu suma íslend- íngaþætti saman; og staðreynd að í þessu yfirsig viðkvæma formi. sem flestum íslenskum skáldum hlýtur að vera fullkomið ofurefli, hef- ur hann unnið afrek sem hlotið hafa viðurkenníngu heima sem heim- an; fáar smásögur sem í upphafi voru samdar á íslensku hafa farið jafnvíða og hans; vandfýsnustu lesendur utan lands og innan hafa vott- að honum virðíngu sína og aðdáun.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.