Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Blaðsíða 45
TIL AUSTURHEIMS VIL ÉG HALDA
251
í gegnum bæinn. Á fljótinu sá ég nokkuð af timburflekum og báta á
ferð. Sumir voru að veiðum.
Eg skýrði fyrir félögum mínum upprunann á nafni bæjarins. Ein-
hverntíma fyrir örófi alda hefði írskur ævintýramaður farið á flakk
austur um meginlandið og borið peningana sína í kút á bakinu. Hér á
fljótsbakkanum hefði hann látið staðar numið og byggt sér bæ og nefnt
eftir landi sínu og kútnum: Irkútsk. Sk sé afleiðsluending, hin sama og
í íslenzku, sbr. ír-sk-ur.
Ég fæ mig ekki til að skiljast svo við Síberíu, að ég víki ekki örfáum
orðurn að fólkinu þar í landi, því að það kom mér að nokkru leyti á
óvart. Það er í stuttu máli sagt eitthvert hressilegasta og rösklegasta
fólk, sem ég hef séð, frjálsmannlegt, glaðlegt og viðkunnanlegt. Þar sá
ég margar laglegar konur, ferskari í útliti og látbragði en ég hef séð
annars staðar. Margt var þar af bjartleitu fólki. Þar rakst ég á allmörg
andlit, sem voru nákvæmlega eins og á vel gerðum sveitastúlkum hér
á landi. Og í forsal hótelsins í írkútsk sá ég Sigurð gamla frænda minn,
sem bjó á Kálfafelli í Suðursveit á uppvaxtarárum mínum. Hefur senni-
lega verið í kaupstaðarferð upp á Papós í haustkauptíðinni.
Þennan dag höfðum við flogið í 6 klukkustundir og 42 mínútur.
X
Þessu næst kemur sá dagur austurferðarinnar, sem mér hefur orðið
minnisstæðastur. Það var sunnudagurinn 28. september.
Við vorum kvaddir upp úr rúmunum 10 mínútum fyrir klukkan
fjögur um nóttina til þess að leggja upp í síðasta áfangann austur,
áfangann til Peking. Við gerðum okkur ferðbúna og átum því næst
smurt brauð með tei í borðsal hótelsins. Að því loknu var haldið út á
flugvöllinn, töskur okkar keyrðar í bíl, en við gengum, enda var leiðin
út að flugvélinni varla lengri en 70 faðmar. En um þessar mundir voru
mannflutningar miklir til Kína, því að fólk streymdi þangað á friðar-
þingið, sem hefjast átti í Peking 2. október. Þess vegna fór svo, að
tveir af okkur urðu að bíða í írkútsk til næsta dags. Þeir ísleifur og
Sophonías buðust til að verða eftir, og það varð að samkomulagi.
Klukkan 4 mínútur yfir hálfsjö hljóp vélin til flugs og stefndi í suð-
austurátt. Eftir tæpan hálftíma var hún komin upp í 2220 metra, en