Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Blaðsíða 34

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Blaðsíða 34
240 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ann inn í líkkistuna, og lokinu var smellt í lás að baki okkur. Klukkan 49 mínútur yfir tvö lyfti hún sér frá jörðu og sveif í norðausturátt. Og nú gerðist sama sagan og uppi yfir Alftanesinu. Jörðin og húsin á jörð- inni urðu fánýtt hjóm, loftið og flugvélin í loftinu miðpunktur heimsins. Miðpunktur heimsins er ævinlega Jrar sem maður er sjálfur. í Kaupmannahöfn hafði loft verið alskýjað og oftast rigning fram til klukkan eitt. Þá glaðnaði til og loft var hálfskýjað og sólskin, þegar við fórum. Þetta heiði hélzt þangað til klukkan hálffjögur. Ég var að horfa niður á Eyrarsund og Skán. Óldurnar á Eyrarsundi voru eins og ljáför viðvanings á túni. Skán öll útflúruð með þorpum og ökrum, auð- sæilega mikið búsældarland, en þar er talað ljótasta mál, sem ég hef heyrt. Hvernig er hægt að útskýra slíkar andhverfur? Smám saman drógumst við inn í þoku og hin feita jörð hvarf augum okkar. Ég hafði liugsað mér að reyna að sjá Jönköping og Norrköping, gamla kunningja frá haustinu 1936. En ég sá ekkert. Mér leiddist það. Þokunni fylgdi stinningsvindur á móti, og flugvélin lét leiðinlega illa. Eg fór að rifja upp fyrir mér rökin fyrir framhaldslífinu. Eftir langt skak og lifandisósköp af hnykkjum grisjaði loksins fyrir sólskinslausri jörð, og litlu síðar var Brommaflugvöllurinn utan við Stokkhólm orðinn miðpunktur heimsins. Þá var klukkan 17 mínútur yfir fimm, danskur tími. Við höfðum verið tvo klukkutíma og 28 mínútur frá Kaupmanna- höfn til Stokkhólms, en Jjetta er talið að vera einnar stundar og 25 mínútna flug. Svona hafði mótvindurinn seinkað ferðum okkar. í Stokkhólmi var Jrvkkt loft og rakakuldi. Þar stönzuðum við aðeins 25 mínútur. Þá hófst önnur lyfting dagsins, og nú var stefnan tekin á Helsinkí. Þarna rorruðum við uppi í háloftunum í gluggalausu skýja- kafi og næturmyrkri, ekkert talandi og ekkert sjáandi fyrir utan vistar- veru okkar nema týrurnar yzt á flugvélarvængjunum, og þær sýndust vera lengst úti við sjóndeildarhring, sem ekki var til. En vélin var stöðug á fluginu. Engin vera er jafnmikill einstæðingur og flugvél í þoku og myrkri. Engin ferðalög virðast vera jafn-heimskuleg. Engin jafn-óuppbyggileg. Engar hreyfingar í rúminu freista þvílíkt Drottins. En nú hefur flugtæknin tekið af honum verndargæzluna. Hann getur snúið sér af því meira krafti að jDjóðabandalaginu og friði á jörð. Þetta ferðalag í hinum yztu myrkrum endaði með sigri ljóssins eins og allar ferðir. Þegar danska klukkan var 14 mínútur yfir átta, renndi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.