Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Síða 115

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Síða 115
UMSAGNIR UM BÆKUR 321 skáld en flestir hinna sem nefndir voru. Eftirtektarverðasti munur á formi Jóns og hinna annarra yngri skálda er að form hans er miklum mun látlausara en þeirra. Það er algeng tegund vanmættis hjá sumum sem yrkja að stíllinn vex skáldinu yfir höfuð og fer sínu fram á kostnað þess. Jón úr Vör lætur formið aldrei yrkja fyrir sig. Hann hefur til- einkað sér afar hlutlægan og einfaldan ljóðstíl, sem vekur traust lesandans. Mörg kvæðanna í bókinni eru nokk- urs konar framhald af Þorpinu, svip- myndir úr lífsstríði vinnandi lýðs, ein- staklega raunsannar, þótt þær gefi ekki sýn yfir miklar víðáttur. En undir niðri í þessum kvæðum er glóð tilfinningar, sem dýpkar merkingu þeirra. I seinni kvæðum þessarar bókar gerist höfundur innhverfari og spurulli um dýpri rök, og stendur þar að vonum ekki jafnföstum fótum í hlutlægri yrkisað- ferð. Hann hvarflar einnig að þjóðfé- lagslegum efnum, en virðist ekki eiga sér andlegt hráskinn í pólitískri né trú- arlegri vissu um uppreist undirokaðra. Hann er efasemdarmaður eins og ský- laust birtist til dæmis í kvæðinu Máttur hins veika. Þar í er þetta: Fyrr trúði ég á mátt hins veika þegar hann hefði lagt hönd sína í hönd þess veika og að þúsundir gætu lyft grettistaki úr vegi réttlætisins. En nú á ég ekki lengur þessa trú Nú veit ég að hinn veiki verður alltaf veikur og hinir einföldu munu guð sjá en aðrir fá að erfa landið. Og þó mun ég ganga hinn sama veg og ég valdi mér í æsku þvi á leiðinni að takmarkinu býr hamingja baráttunnar en vonbrigðin á vegarenda. Eins og þessi tilvitnun sýnir má finna á bókinni nokkur þreytumerki erfiðra tíma. En í þessari bók Jóns úr Vör er meiri einlægni og straumur frá hlýrra þeli en í öðrum kvæðum yngstu skálda. H. J. J. Jón Oskar: Mitt andlit og þitt Heimskringla 1952. Þetta er fyrsta bók höfundar og það er ekki stór bók, aðeins tæpar sex arkir; en þó mun hún kærkomin mörgum vand- látum lesara. Þeir sem kynnzt hafa smá- sögum Jóns Óskars munu fagna því að hafa þær hér í einni bók, og vænta fleiri bóka frá hans hendi sem fyrst. Jón Óskar er vandvirkur höfundur, skrifar gott mál og stíll hans fellur vel að efninu. Söguefnin í þessari bók eru ekki fyr- irferðarmikil og sögurnar ekki spenn- andi. Ég efast um að mörgum þætti frumsagan, svipt öllum umbúnaði höf- undar, eftirtektarverð, og við ytri mann- lýsingar leggur hann sjaldan mikla rækt. Styrkur skáldsins liggur á öðru sviði: Honum er sýnst um að skapa stemmningu utan um lítilvæg atvik, um- lykja þau töfrum sem láta lesandann renna grun í stóru söguna að baki litlu sögunnar og persónu að baki myndar- innar, og hann kann ágætlega að tak- marka sig svo áhrifin verði sterk og fari ekki forgörðum. Þetta er ekki ritdómur, aðeins fá orð til að minna á þessa litlu en hugðnæmu 21
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.