Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Blaðsíða 65

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Blaðsíða 65
TIL VARNAR SKÁLDSKAPNUM 271 fram. Og allir vita um óvinsældir ljóða Einars Benediktssonar, etc. etc. Ég bið afsökunar að verða að minnast á svo alkunna og margendur- tekna staðreynd, en menn eru undarlega gleymnir stundum á alkunnar staðreyndir. Það sorglegasta er að það virðist vera nærri ófrávíkjan- legt lögmál að þeir sem mest verða fyrir barðinu á þessari andúð gleyma henni rækilegast þegar frá líður — minnsta kosti að því er tek- ur til annarra. — Raunar er dr. Björn aðeins að endurtaka hina gömlu röksemd: Fólkið lítur ekki við skáldskap ykkar, þessvegna er hann einskis nýtur. En þessi röksemd er lokleysa. Ný list, sé hún einhvers virði, er yfirleitt ekki vinsæl meðal almennings, það hefur löngum ver- ið svo. Að vísu í misjafnlega ríkum mæli, og stundum hafa komið tímabil er áheyrendur og áhorfendur hafa verið opnari fyrir hinu nýja eða réttara sagt: áheyrenda- og áhorfendahópur hins nýja hefur verið stærri.1 Þetta er ekki af því almenningur hafi ekki hæfileika til að njóta hins nýja. Ég mundi frekar segja að hann hafi ekki tíma til þess eða gefi sér ekki tíma lil þess. Nýtt listaverk er stórkostlegt ævintýri. Það er eins og ný vél. Aðkomandinn skilur í fyrstu ekkert í öllum þessum til- færingum, en með tíma og leiðbeiningum má vera að hann komist að því hvaða hlutverki hvert hjól liefur að sinna. Nýtt listaverk kemur ekki til okkar, við verðum að koma til þess; það er ósveigjanlegt, við erum sveigjanleg. Samt er sveigjan heldur stirð í flestum okkar og við þurf- um langan tíma. Að lokum vildi ég leyfa mér að benda dr. Birni á að eftir kenningu hans eru allar erlendar ljóðbókmenntir einskis nýtar íslendingum. Eða hvað? Erlend ljóð eru óstuðluð: enginn nennir að læra þau eða rifja upp fyrir sér: þau eru andvana fædd. Áður en ég skil við dr. Björn í bili verð ég að biðja hann mikillega 1 Kannski hefur ástandið að þessu leyti sjaldan verið eins slæmt og nú. Eitt af hlutverkum ungra íslenzkra skálda og listamanna verður að vera að komast í beinna, nánara samband við almenning. Eg held að reglan stórar bókmenntir þurfa stórt públíkum hafi við mikið að styðjast, þar með er ekki sagt að listamaðurinn eigi að láta undan smekk almennings ef hann er lélegur. Listamenn með miljóna- þjóðum geta ef til vill sér að skaðlausu látið þetta málefni afskiptalaust, við getum það ekki, við erum of fáir. Til þess að bókmenntir og listir geti þrifizt á íslandi verða Islendingar að vera bókmennta- og listaþjóðin par excellence. Þjóðin þarf helzt öll að vera áhorfendur og áheyrendur listamanna sinna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.