Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Síða 22
Friðarþing í Peking og Vínarborg
Heimsfriðarhreyfingin undir forystu franska vísindamannsins Joliot-
Curie hefur mjög látið til sín taka að undanförnu og eykst fylgi hennar
og starfsemi í öllurn löndum. Má nefna sem dæmi að undir áskorun henn-
ar til stórveldanna um að gera með sér friðarsamning hafa á einu ári
ritað nöfn sín yfir 600 miljónir fullorðinna manna úr flestum eða öllum
löndum heims nema íslandi. eða um þriðjungur mannkynsins.
1 júlí í sumar boðaði framkvæmdanefndin til fundar í Berlín. Var þar
gefið yfirlit um starf friðarhreyfingarinnar og rædd helztu heimsvanda-
málin, Þýzkalandsdeilan, sérsamningarnir við Japan, Kóreustyrjöldin
og afvopnunarmálin. Um öll þessi mál voru gerðar ályktanir er samein-
að gætu þjóðirnar og orðið leiðarsteinn öllum sem berjast fyrir varð-
veizlu heimsfriðarins. En meginverkefni ráðstefnunnar var að undirbúa
alþjóðlegt friðarþing á sem breiðustum grundvelli og var tekin ákvörðun
um að kalla það saman í Vínarborg í desembermánuði.
Aður en Vínarþingið kom saman gerðust stórtíðindi önnur í heims-
friðarmálunum: Austurlandaþjóðirnar boðuðu til friðarþings í Peking,
höfuðborg Kínaveldis, í lok septembermánaðar í haust, og komu þar
saman fulltrúar fyrir hvorki meira né minna en 1.600 milj. manna, einn
miljarð og sex hundruð miljónir, eða þrjá fjórðu hluta mannkyns.
Sendinefndin sem héðan fór til Kina fékk einmitt tækifæri til að koma á
þingið og kynnast störfum þess.
Undirbúningur undir friðarþingið í Vín stóð marga mánuði, eða frá
því ráðstefnunni í Berlín lauk í júlíbyrjun og fram til 12. des. er þingið
var sett, og fór liann fram með sérstökum hætti. I sumum löndum voru
fulltrúarnir valdir á héraðaþingum eða landsþingum sem kosið hafði
verið til áður með almennri atkvæðagreiðslu. Að öðru leyti sendu
ákveðin samtök, t. d. þingmanna eins og á Italíu eða trúarflokka, full-
trúa frá sér. Ætlunin var aldrei að þetta yrði þing heimsfriðarhreyfing-
arinnar einnar heldur var boðað til þess að frumkvæði hennar sem
friðarþings þjóðanna þar sem hverskonar samtök og einstaklingar er að