Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Blaðsíða 40
246
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
legt drukkinna manna látbragð. Honum var smeygt hljóðlega út um dyrn-
ar. Eftir það var allt prútt og settlegt í kránni.
Við sátum þarna til klukkan ellefu og glöddum hjörtu okkar á píva.
Þetta var ágætur bjór. Framtíð mannkynsins var orðin ívið bjartari en
þegar við komum inn í krána. Þetta er blekking, hugsaði ég.
„Já, að vísu,“ svaraði önnur rödd innra með mér. „En allt lífið er
blekking. Þetta er stundarblekking, hitt æviblekking.“
En þetta er vond blekking, hugsaði ég.
„011 blekking er vond,“ svaraði röddin. „Ef æviblekkingin væri ekki
til, þá væru ekki heldur til neinir sjúkdómar, engin trúarbrögð, ekkert
auðvald, engar nýlendur, engir herir, engar styrjaldir, engin stundar-
blekking. Öll eymd mannanna á rót sína í myrkri blekkingarinnar, í
vitleysinu.“
Þú segir nokkuð, hugsaði ég til raddarinnar og tók aftur upp talið
um framtíð mannkynsins. Okkur leið vel í kránni. Þar var þægilega
hlýtt og við vorum í skikkanlegum félagsskap. Það þarf ekkert að ótt-
ast um framtíð mannkynsins. Kraftar ljóssins sjá fyrir því. Þeirra er
ævinlega kredítin, þegar þróun lífsins slúttar reikninginn.
Loks stóðum við upp og borguðum gjaldkeranum. Þegar við erum
komin út að dyrum, kallar hún á eftir okkur. Við göngum aftur inn
að slagborðinu. Hún brosir og réttir Skúla nokkra kópeka, sem hann
hafði ofborgað. Svo tókum við strikið beint heim á hótelið. Morgun-
dagurinn verður dagur strangrar reisu.
VII
Morguninn eftir, 25. september, var loft alskýjað í Moskva, en
glaðnaði til, þegar á morguninn leið og varð léttskýjað og sól í heiði.
Um hálftvö setti yfir dálítið þykkni og gerði hæga skúr. Logn var á og
hlýtt í veðri.
Þessi morgunn var tíðindalaus eins og flestir aðrir morgnar. Við
átum okkar góða mat á hótelinu. Isleifur, Jóhannes og Sophonías
sögðu, að myndin hefði verið góð, því að þá grunaði, að við hefðum
haft góða skemmtun á kránni. Að því loknu fórum við að búa okkur
til ferðar. Þegar klukkan var gengin 21 mínútu í tvö hljóp bíllinn af
stað með okkur frá Hótel National, og 51 mínútu síðar vorum við