Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Side 88

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Side 88
294 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR augum, meta rök hennar samkvæmt þeim örlögum sem yfir söguhetj- urnar dynja. Þetta er aöal mikils skáldskapar. Ég þarf ekki að lýsa því hvernig Halldóri Laxness hefur tekizt að gera þessu erfiða hlutverki skil í fyrri bókum sínum; við þekkjum sæg af persónum sem hann hefur skapað, þekkjum þær svo að þær eru okkur engu síður raunverulegar en flestir samtíðarmenn okkar; okkur eru hugstæðir fjöldi viðburða úr sögum hans miklu fremur en obbinn af þeim atvikum sem borið hefur fyrir okkur sjálf. Einu gildir hvort þessir atburðir hafa gerzt á þessum síð- ustu árum eða á dögum Jóns Hreggviðssonar, hvort þeir hafa orðið suður í Róm, í Kaupinhafn eða á Óseyri við Axlarfjörð. Þeir eru okk- ur jafn-nálægir, jafn-skýrir og koma okkur jafnmikið við. Og þetta er mikilsvert atriði, ef til vill mikilsverðasta atriðið: sögur Halldórs Lax- ness hafa einlægt komið okkur við, það líf sem þar hrærist er líf okkar, ekki okkar Islendinga einna, heldur hið stríðandi mannlíf á jörðinni, hér og nú. Að þessu sinni hefur Halldór leitað lengra aftur í tímann en fyrr, sótt sér söguefni alla leið í heim íslenzkra fornsagna, leitt fram á sviðið persónur sem við teljum okkur þekkja áður, eins vel og persónur verða þekktar úr bókum. Þetta hefur komið mörgum á óvart, og engin furða að sumir spyrji: Er þetta ekki fífldirfska að ætla sér þá dul að semja skáldsögu um þvílíkt efni svo að hún geti haldið hlut sínum gagnvart þeim bókmenntum sem við höfum ávallt talið helgan dóm okkar og þjóðardýrgrip? Er hægt að draga upp nýja mynd af fornum hetjum Islendingasagna og gera hana jafn-lifandi og nákomna lesendum eins og þá sem við höfum alizt upp við frá blautu barnsbeini? Víst er um það: íslenzkur höfundur sem tekst á hendur að semja skáldsögu úr heimi íslendingasagna á við margvíslegan vanda að etja sem ekki yrði á vegi starfsbróður hans með öðrum þjóðum. Því valda sögurnar sjálfar. Mál þeirra og stíll, persónur og viðburðir, þetta er heimur, fastmótaður og ljóslifandi, sem er okkur svo kunnur og kær að okkur finnst fljótt á litið að þar sé litlu við að bæta. Lítum fyrst andar- tak á málið. Mál og stíll íslendingasagna er túlkur íslenzkrar menning- ar og íslenzks aldaranda á 13. öld; ef samin væri skáldsaga nú á tímum sem að máli til væri nákvæm eftirlíking fornsagna, yrði hún óhjá- kvæmilega dauður bókstafur, óskyldur skáldskap; ekkert skáld getur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.