Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 27
HEIMA OC HEIMAN
17
herra, en annars hefur lítt komiS við sögur, og ekki vakið athygli á nafni
sínu nema í þetta eina skifti.
Skjal Petersens var í opinberu tilskipunarformi; það er nokkurskonar
viðbætir við Christensen, og fullkomnun á honum, og hefur inni að
halda fyrirskipun til dönsku þjóðarinnar um það hvernig hún eigi að
haga sér í stríði því sem danir „og bandamenn þeirra“ (að því er virðist
þjóðverjar, ameríkumenn o. fl.) ætla að fara í, einhvern næstu daga;
einginn vafi virðist leika á því, að sá sem á að berjast gegn er vinþjóð
dana að fornu og nýu, rússar. Ekki voru nú horfurnar í stríði þessu gæfu-
legri en svo, samkvæmt plaggi Petersens, að ráð var gert fyrir því að
rússar mundu fljótlega leggja undir sig Danmörku; — þess vegna varð
skjalið til. Petersen segir að þegar „óvinurinn“ sé búinn að leggja undir
sig landið, og vopnaviðskifti orðin vonlaus dönum, þá sé ekkert líklegra
en ábyrgir stjórnaraðiljar, svo sem þjóðhöföínginn sjálfur, ríkisstjórnin,
ríkisdagurinn eða yfirstjórn hersins fyrirskipi þjóðinni að hætta bar-
dögum sem miði að því einu að kvista niður landsfólkið að þarflausu.
En þá gerir Petersen sér lítið fyrir og lýsir yfir því að öll yfirvöld í Dan-
mörku sé sett af á samri stund og þau skipi að vopn séu lögð niÖur í von-
lausri baráttu. Þegar þar er komið að hinn grimmi óvin á alskostar við
þjóöina, og yfirvöld hennar vilja að þessu ónýta brjálæði sé hætt, þá ber,
samkvæmt tilskipuninni, að skoða hin sömu yfirvöld, frá konúngi og rík-
isstjórn og alla leiÖ niðrúr, sem falsara, ómerka orða sinna, og hver sem
hlýðir konungi sínum eða landstjórn er sekur maður. Berjast skal áfram
í konúngslausu og stjórnlausu landi án herforuslu, hvað sem tautar og
raular, og er þessi væntanlega niðurmurkun dönsku þjóðarinnar í til-
skipun Petersens kölluð barátta fyrir rétti dönsku þjóöarinnar til að búa
í Danmörku og byggja.
Þetta merkilega plagg, þar sem konúngur dana er rekinn frá völdum
fyrirfram, og ríkisstjórnin slíkt hið sama, ef þessi höfuðyfirvöld landsins
ekki haga sér eftir vilja Petersens í tilteknu efni á ókomnum tímum, er
einstætt plagg í stjórnmálasögu þjóðar. Vitaskuld hefur aungvum manni,
hvorki í Danmörku né utan Danmerkur komið til hugar að Petersen þessi
ætti stakt orð í plaggi því er hér var frá skýrt. Svo heimskur maður er
ekki til í Danmörku, að hann geti látið annað eins útúr sér og það sem
þar er skrifað. Það eru aörar „dygðir“ en heimska sem því valda, að sak-
lausir kontóristar í Danmörku láta hafa sig til að undirskrifa tilskipun
Tímarít Máls og menningar, 1. h. 1954
2