Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Blaðsíða 59
UM GARCÍA LORCA
49
Tónsmíðir
„Cante
jondo-ljóð"
hvort hann ætti heldur að leggja rækt við súrrealistísk leikrit eða alþýðu-
leikrit, megum við vera hamingjunni þakklát fyrir, að hann valdi alþýðu-
leikritin. Býst ég við, að flestir séu honum sammála.
Haustið 1930 hélt García Lorca aftur til Madrid.
Skömmu síðar lék hann á plötur nokkur vinsæl þjóð-
lög, sem hann hafði sjálfur safnað, og eins lög, sem hann hafði samið
fyrir vin sinn, spænska dansarann La Argentinita. Munu þessi lög vera
hið eina, sem varðveitzt hefur af tónsmíðum García Lorca. En hann
samdi fjölmörg fleiri, bæði við dansa í sínum eigin leikritum og annarra
eldri höfunda.
Árið 1931 kom út ný Ijóðabók eftir García Lorca, og
nefndist hún „Cante jondo-ljóð“ (Poema del cante
jondo). Ljóðin voru þó ekki ný, heldur eftirlegukind-
ur frá árunum 1921—22, en hann hafði margendurskoðað þau, umsam-
ið og bætt á þeim áratugi, sem síðan var liðinn. En þau bera þess merki,
að þau eru ort, meðan hann var „syngjandi skáld“. Þau eru bæði að
háttum og efni kjörin sem sönglagatextar, en njóta sín ekki til fullnustu
við lestur. Nafnið er dregið af sígaunasöngvunum, sem áður er frá sagt.
Lýðveldi stofnað ^etta sama ar var konungsveldi afnumið á Spáni og
lýðveldi stofnað. Spænska þjóðin fylltist eldmóði. Nú
átti að bæta fyrir aldagamlar vanrækslusyndir. Verklegar framkvæmdir
skyldu haldast í hendur við efling andlegrar menningar, unz Spánn stæði
öðrum löndum á sporði — og meira þó: Allt átti að verða til fyrirmynd-
ar: tækni, menntun, frelsi, lýðræði. Við þekkjum, íslendingar, þessa sælu
tilfinningu af nálægri reynslu.
Eins og nærri má geta, vildi García Lorca ekki láta
sitt eftir liggja í nýsköpuninni miklu. Hann lagði til
við ríkisstjórnina, að stofnaður yrði farandleikflokkur, er færi um land-
ið og léki sígild spænsk leikrit fyrir bændur, verkamenn og aðra alþýðu
úti á landsbyggðinni. Vinur hans, Fernando de los Ríos, sem þá var orð-
inn menntamálaráðherra, féllst þegar á tillöguna, ríkisstyrkur var veittur
til framkvæmda, og árið 1932 tók leikhópurinn til starfa. Leikarar voru
flestir úr hópi stúdenta, en stjórnendur voru García Lorca og Eduardo
Ugarte. Leikflokkur þessi hlaut nafnið La Barraca.
García Lorca gekk að starfi með eldlegum áhuga. Hann var leiðbein-
andi, gerði leiksvið og -tjöld, valdi búninga, samdi eða valdi tónlist, rit-
Tímarit Máls og menningar, 1. h. 1954 4
La Barraca