Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 90

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 90
80 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR stæð um íslenzka menningu og hæpið að telja hana með öllu fulltrúa hennar. Ennfremur má athuga menninguna með tilliti til stéttaskipt- inga: kennarar, iðnaðarmenn, daglaunamenn, sjómenn, bændur o. s. frv. (skipting þjóðar í stéttir er reyndar mjög flókin). Ef við göngum út frá menningunni sem ákveðinni heild, sést fljótt, að ekki túlka allar þessar stéttir menninguna á sama liátt né í jafnrík- um mæli. Kennarar leggja t. d. oft sérstaka áherzlu á málfegurð og varðveizlu málsins. Þeir, sem fást við verkleg störf, myndu sennilega beina huga sínum meir að hinum hagnýtari hliðum menningarinnar (oft er t. d. talað um að verkfræðingar hafi lítinn áhuga á listum og bókmenntum). Ekki hafa allar stéttir þjóðfélagsins heldur notið jafnlangrar né sams- konar skólagöngu. Búast má við að sá, sem einungis hefur notið barna- fræðslu, hafi ekki sömu skoðanir um menningarmál og langskólagengið fólk. — Allt þetta og margt fleira verður að taka til greina, þegar at- hugað er, hvernig menning þjóðarinnar endurspeglast í hverjum ein- staklingi. Menn eru ekki á sama hátt næmir fyrir áhrifum hennar; fer það eftir upplagi þeirra, uppeldi öllu, menntun, starfi, áhugamálum og þeim hópi manna, er þeir eiga skipti við. Einstaklingurinn er eins kon- ar brennipunktur, þar sem margvísleg öfl mætast og renna saman í eina heild. Efniviður persónuleikans kemur að mestu utanfrá; úrvinnsla hans er að mestu verk okkar sjálfra. Sagt er að þessi eða hinn eigi lítinn persónuleik. Sá skilar hráefninu að mestu óunnu, eða lætur sér nægja að taka upp framferði þeirra, sem hann umgengst. Stundum getur persónuleikinn verið sterkur og seiðþrunginn, ný- stárlegur og sérstæður smíðisgripur, sem opnar augu fjöldans fyrir nýrra og hjartara ljósi. Svipþungi hans og áhrifavald getur jafnvel sveigt menninguna inn á áður ókunna stigu, aukið frjósemd hennar og fengið hana til að bera ríkari ávexti. Maðurinn er aldrei einn. Innra með honum hrærist líf og menning umhverfis hans, þeirra sem hann umgengst, þess sem hann hefur lesið, heyrt og séð. Við lútum alltaf einhverjum öflum, sem eru sterkari en við sjálf. Við eigum vini, kunningja og ættfólk, sem okkur er kært. Nauðsyn er okkur að fylgja því að einhverju leyti; að öðrum kosti myndum við einangrast og fölna. Jafnvel hinn sterkasti persónuleiki getur ekki slitið öll félagstengsl og lifað einangraður í hugsun sinni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.