Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 124
Orðsending frá Máli og menningu
um útboð á skuldabréjum til hlutafjárkaupa
í Vegamótum h.f.
Eins og sk>'rt var frá í síðasta hefti Timaritsins gekkst Mál og menning á
síðastliðnu hausti fyrir stofnun hlutafélags, með einnar milljón króna hluta-
fjárupphæð, til að kaupa eða reisa hús fyrir starfsemi Máls og menningar.
Hlutafélagið nefnist Vegamót og hefur Jtað keypt húseignina Laugaveg 18
og Vegamótastíg 3 og 5 í Reykjavík, og hlutafjársöfnun er langt komið.
I því skyni að bókmenntafélagið sjálft, Mál og menning, geti eignazt sem
stærstan hlut í Vegamótum h.f. hefur stjórn félagsins gert útboð á 300 þús-
und króna láni, 1000 króna, 500 króna og 250 króna handhafaskuldabréfum.
Lánið er boðið út til 15 ára með 1% vöxtum, afborgunarlaust fyrstu 5 árin,
en bréfin síðan dregin út á næstu tíu árum.
Það sem óselt er af skuldabréfum þessum, eða um það bil helmingur, er
til sölu í skrifstofu Máls og menningar, Þingholtsstræti 27, í Bókabúð Máls
og menningar, Skólavörðustíg 21, og hjá umboðsmönnum félagsins.
Oþarfi er að skýra fyrir félagsmönnum hver styrkur það er Máli og menn-
ingu að eignast sem stærstan hlut í „Vegamótum" og geta komið upp góðri
byggingu fyrir starfsemi sína við aðalgötu í Reykjavík.
Stjórn Máls og menningar heitir því á umboðsmenn og félagsmenn um allt
land að bregðast vel við lánsútboði félagsins, ljúka sölu skuldabréfanna sem
fyrst, og flýta þar með fyrir að byggingarframkvæmdir geti hafizt.
STJÓRN MÁLS O G MENNINGAR
Kristinn E. Andrésson. Jakob Benediktsson.
Ragnar Olafsson. Halldór Kiljan Laxness.
Halldór Stefánsson.
PRENTSMIÐJAN HÓLAR H-F