Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Page 38

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Page 38
TIMARIT MALS OG MENNINGAR hefur að sjálfsögðu snúizt við þeim vanda sem hraðast, að útvega sama- stað þessum miður velkomna borgara. Eftir því sem pabba lágu orð til, hef- ur hann unnið það verk happadrýgst til handa einu vandalausu barni, því sveininum kom hann til fósturs að Hvammi til þeirra nafnkunnu og val- inkunnu hjóna, Helgu Guðmunds- dóttur og Eyjólfs Jóhannessonar, en þau voru foreldrar Jóhanns frá Sveinatungu og þeirra mörgu og fjöl- gáfuðu systkina. — Eyjólfur í Hvammi var eitt bezt alþýðuskáld í Borgarfirði á sinni tíð, spakur mað- ur og hófsamur, jafnlyndur í dagfari, garðræktarmaður og jarðræktar, góð- ur börnum, og hafði til að bera þá ratvísu brjóstgreind, sem er aðal og styrkur hverjum þeim sem hefur. Hjá þessum ágætu hj ónum ólst fað- ir minn upp. Hjá þeim dvaldi hann fram á fullorðinsár, fyrst sem ómagi sveitarinnar, síðar sem matvinnung- ur, síðast sem fyrirvinna heimilis þeirra, — og þó alla tíð sem sonur þeirra, hvað aðbúð og atlæti snerti, enda kallaði hann þau aldrei annað en pabba og mömmu. Hann bar til þeirra sonarást og fyrir þeim djúpa virðingu. Enginn efi er á því, að jafn örlynd- ur maður og pabbi var, hefur haft af því mikið gotl, að umgangast í upp- vextinum slíkan jafnvægismann í skapgerð sem fóstri hans var. En börn þeirra Hvammshjóna, sem öll voru honum eldri og suin þegar alflutt að heiman er hann kom þangað reifa- barn, höfðu hraðar gáfur og heita lund. Heimilið stóð opið fyrir öllum þeim nýjungum, sem til þess gátu bor- izt, úr heimi bóka og blaða. Þjóðmál og bókmenntir ræddu þessi systkini sín í milli af eldlegum áhuga, og ég, sem átti því láni að fagna að kynnast nokkuð sumum þeirra á þeirra efri ár- um, mun ætíð undrast og dást að, hvað fjör gáfna þeirra og hugmynda- flug var mikið, hvað frásagnargleði þeirra var einlæg, fyndni þeirra mark- viss og gagnrýni þeirra hvöss og rök- vís. Það lætur að líkindum að þessi sí- vakandi andi systkinanna hefur sett að marki svip á heimilið og orkað til áhrifa á þá, sem yngri voru, enda var pabbi alla ævi hinn mesti vinur ljóða og bóka, mjög ákveðinn í afstöðu sinni til manna og málefna og svo hreinskilinn, að þar var um að ræða þá bersögli, sem ekki þykir allstaðar henta. Laust fyrir síðustu aldamót flytja þau alfari til Vesturheims, afi minn og amma, ásamt þrem börnum sínum uppkomnum, Sigríði, Þóru og Jó- liannesi. Eftir verða á íslandi þau Benónýja og faðir minn, — og er þá upptalið það af börnum þeirra Jóns og Sigurbjargar, sem dauðinn ekki hafði tekið. Sagði faðir minn að for- eldrar sínir hefðu lagt fast að sér að 28
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.