Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Page 78

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Page 78
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Það gerði Sigga aldrei. En þegar maður kom heim, þá var alltaf ilmur á móti manni, — oft- ast —. Það var alltaf gleði, þegar pabbi kom heim! Já, já! Alltaf gleði! Maður þurfti ekki að horfa i augu, sem ... Sigga átti mjög falleg augu. Nú lét maður ketið bíða, þangað til maður kom heim. Ojá, það var þá hægt að virða það fyrir sér í troginu óskert. Þetta, sem hátíðunum var ætl- að. Ekki var notalegt í kofanum, bað- stofunni á Ljósavöllum, núna. Þar var ekki neinn ylurinn. Líklega var dautt í kabýssuskarn- inu. Já, því að hér var kabýssa. Það var nú gamalt hró, og rétt til að hlæja að því. Þeir höfðu ætlað að henda þessu. Hann hafði fengið hana fyrir tvenna sjóvettlinga. En þung hafði hún verið, að bera hana yfir heiðina, skömmin, en hún var búin að borga það með ylnum síðan. Já, svona hluti borgaði sig að bera. Hann hafði aldrei farið með ldár í kaupstaðinn, síðan hérna um árið. Faktorinn, kannski kæmist hann í dýrðina á undan Blesa, þeir voru víst báðir í Danmörku núna. En fjandinn hafi það, hann ætlaði ekki að fara að birgja erlenda að hestum, þeir gátu keypt stóðtruntur, af þeim, sem áttu. Það var ekki hlaupið á að eignasl hest. Líklega var kulnað í kabýssunni. Þetta var nokkuð langur tími að fela eld. Tafsamt að ná í eldspýtnastokkinn og vefja utan af honum bréfið. Svona hluti geymdi maður vel. Ekki gott að segja, hvenær maður fengi eldspýtur næst. Það hefði nú verið kjaftshögg að þurfa að hlaupa eftir eldi, og vera ný- kominn heim til að sjóða ofan í sig hangiketið! Stokkurinn var ekki hálfnaður. Hann mundi endast mörg árin enn. Eldspýtan dugði líka til að kveikja á kolunni. Lampi hafði nú verið til á búinu. Honum var hægt að farga, þegar maður var orðinn einn. Kolan var nóg. Ekki þurfti að sækja olíuna! Lampi án olíu var lítils virði. Fífan var nóg á Ljósavöllum, lýsi átti maður líka. Það átti maður á sels- maga. Kom sér vel, fyrir þá, sem bjuggu við sjó, að geta skipt á lýsi og mör- körtu. Bræðingur er hollur. Þeir, sem ungir eru, þurfa að fá eitthvað kraftgott í gogginn. En mag- inn meltir ekki mikið af tómu lýsi. Þetta blessað tár. 68
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.