Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Side 82

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Side 82
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR kynnu að gleymast, eins og vonlegt var. En brennivínið hafði horfið með faktornum. Þeir, sem eru í kaupfélagi þurfa ekki brennivín. Að maður vaknaði? já, ætli þeir ljúgi því ekki að göml- um manni, eins og öðru. Þeir höfðu logið í hann frá því hann mundi. Menn mundu ekki gera sér það að leik að verða ríkir, bara til þess að komast ekki inn í himnaríki. Og þó var kannski einhver þarna uppi, — en hann var þá allt öðruvísi en hann var sagður. Og eflaust ekki al- máttugur. Almáttugur? Nei, það gat hann ekki verið. Þá var að minnsta kosti ólíkt innrætið hans og Brynka gamla, því að skyn- skiptingur var hann enginn, — ef hann var til. Nei, Brynki hefði ekkert að gera í heimsókn til þess háttar herra. Hann hafði ekki lagt það fyrir sig um dag- ana að heimsækja höfðingja og mundi ekki taka upp þann sið, þótt hann ætti eftir að verða eilífur. Höfðingjarnir voru fyrir aðra en Brynka á Ljósavöllum. Til þeirra hafði hann sótt smátt — og ekki gott, — fæst gott. — Því var svo sem ekki að neita, að stundum hafði hann kom- ið með ýmislegt upp í munn, en þá kom fullt gjald fyrir. Gamall maður átti víst lítið til að verzla fyrir við himnasjólann. Hann hafði víst gengið eftir sínu, engu síður en faktor og kaupfélag. Blessunin hann Gunnar og flaskan. það sparaði manni þó ketið. En til hvers var að spara, þegar enginn gladdist yfir að bita væri stungið í munn. Gamall maður var líka orðinn ónýt- ari að vera svangur, þegar engan var að seðja. Gamall maður var hættur að hlakka til. Þá er ævin bráðum öll. Hún varð öll, þegar hann sneri heim og enginn beið. Enginn, þó að kindur væru í hús- um, því að gamall maður lifir hvorki af kindum einum né fyrir kindur ein- ar. Þó finnst honum það stundum, en það er bara tór. Tór, sem krökktir á meðan eitthvert lýsi er eftir á kolunni. Gamall maður stendur á fætur. Hann er stirður og valtur. Færðin hefur verið þung í dag — þó stundum þyngri. Kannski rétt að gá til veðurs? Hann vagar og gengur út. Nú eru komnar stjörnur um allan himin. — Og norðurljósin braga. Það er hvítt svo vítt sem sér, en gamall maður sér ekki langt. Frostkyrr nóttin gerir hann léttan á sér. — Þó er honum hálf-bimb- ult. Hann skyrpir út úr sér og fer að 72
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.