Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Síða 103

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Síða 103
UMSAGNIR UM BÆKUR frá glötun. Merkasta rit hans mun þó jafnan verða talið íslenzkar gátur, skemmtanir. vikivakar og þulur, er bókmenntafélagið gaf út fyrir aldamótin. Þar í safnaði Jón Áma- son þó gátunum og sá um útgáfu þeirra. Eftir Ólaf liggja margar greinar og ritgerð- ir aðrar um þjóðleg efni, og mun þeirra mest bók hans um Galdur og galdramál á Islandi, sem Sögufélagið gaf út fyrir nokkr- um ámm. Raunar stundaði Ólafur ekki ís- lenzk fræði að háskólanámi, þótt margfróð- ur og afkastamikill væri á því sviði, heldur stundaði hann náttúnifræði og varð þar einnig liðtækur vel, einkum í grasafræði, en aldrei lauk hann háskólaprófi í þeirri grein eða annarri. Bréf Ólafs til föður hans og dagbókar- br-otin, sem nú em út komin, lvsa höfundin- um að mörgu leyti betur en unnt væri að gera á annan veg. Hann kynnir sig í bréfum þessum sem hreinskilinn, opinskáan og góð- an dreng, sem játar tíðum breyskleika sinn og reynir að þekkja og skilja sjálfan sig. Margir menn, sem urðu síðar þjóðkunnir, koma við söguna, skólabræður Ólafs og ýmsir aðrir, og er margt, sem af þeim segir, fróðlegt og skemmtilegt, sumt ef til vill með þeim hætti, að kyrrt mætti liggja. En hvað um það. Ekki verður við öllu séð. Ilitt er miklu meira, sem gleður lesandann, en það, sem hneykslar. Um Ólaf Davíðsson sjálfan eru bréfin og dagbókin frábær heim- ild. Helzt býður mér þó í hug, að verðleikar hans komi eigi nægilega skýrt fram sökum hlédrægni hans og hæversku. En um gáfur hans og dugnað við nám og vinnu, þá er hann tók á því, eru mörg vitni samtíðar- manna hans og vina, enda eru þar til jar- tegna verk hans sjálfs. Finnur landsbókavörður hefir þegar unn- ið þarft verk með smekldegri útgáfu ýmissa bréfasafna. Væri óskanda, að það starf hans væri ekki enn um enda gert. Slík rit virðast vinsæl af almenningi. Vér þurfum að hafa mikið af góðum, þjóðlegum bókum á boðstólum. Þá hverfa hinar sjálfkrafa í skuggann. GuSni Jónsson. Sigurbjörn Einarsson: Albert Schweitzer Bókaútgáfan Setberg. Reykjavík 1955. in þeirra mörgu bóka, sem út voru gefn- ar fyrir síðastliðin jól, er ævisaga hins víðkunna mannvinar, Alberts Schweitzers. Sigurbjörn Einarsson prófessor hefur ritað bókina og að sjálfsögðu byggt hana á beztu heimildum, ritum Schweitzers sjálfs. Er bókin ágætlega rituð, sem vænta mátti, enda er höfundur hennar kunnur að því að vera með allra ritfærustu mönnum þessa lands og ágætlega menntaður guðfræðingur. Schweitzer er fyrir flestra hluta sakir óvenjulegur maður. Vinnuþrek hans og gáf- ur eru með afbrigðum, enda eru afköst hans undraverð. Hann er svo fjölhæfur að hann virðist leggja gjörva hönd á alla skapaða hluti. Hann er afkastamikill rithöfundur í guðfræði, snilldar tónfræðingur og heims- frægur organleikari, einnig stórmerkur læknir, og vinnur svo mikil afrek á hverju einu af þessum sviðum að það eitt gæti bjargað minningu hans. En þó er enn ótalið það í fari hans, sem meira er en allt þetta: hin mikla fómfýsi hans og mannást. Það eru þessir eiginleik- ar sem gera hann að einskonar dýrlingi, enda er líklegt að það hafi vakað fyrir Sigurbirni, er hann ritaði ævisögu hans, að laða menn til að taka þann dýrðlega mann sér til fyrirmyndar. Bókin er girnileg til lestrar af mörgum ástæðum. Hún er ágætlega samin, hún flyt- ur lesandanum margvíslegan fróðleik og hún gefur innsýn í þróun þess furðulega manns er hún f jallar um. 93
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.