Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 7
RITSTJÓRNARGREINAR
í sveitum og við sjó. Þann einhug, þá samstöðu þarf að efla. Alþýðusamtökin hvarvetna
um land, verkalýðsfélög, ungmennafélög o. s. frv., þurfa nú að nýju að láta hernáms-
málið til sín taka. Baráttan fyrir því, að staðið verði við samþykkt Alþingis um brott-
flutning hersins, er hafin. Alþýðan þarf sjálf að skipuleggja og heyja þá baráttu, það
verður hennar verk að koma hinum erlenda her burt úr landinu, og hennar verður heið-
urinn.
Nú er að reisa Vegamót
r oks getum við fært vinum Máls og menningar þau góðu tíðindi að fjárfestingarleyfi er
fengið til byrjunarframkvæmda á byggingu Vegamóta að Laugaveg 18, og kemur þá
að því að hefjast handa og eiga afl þeirra hluta sem gera skal.
Mál og menning tengir miklar vonir við þessa byggingu þar sem ráðgert er starfs-
heimili félagsins, og draumur okkar var að sjá liana rísa á tuttugu ára afmæli félagsins í
ár. En þó að við séum orðnir á eftir tímanum er hægt að leggja grunninn á þessu ári og
tryggja það að byggingin verði framkvæmd.
Á aðalfundi Vegamóta 19. júní s.l. var rætt um fyrirkomulag byggingarinnar, teikn-
ingu, ýmis framkvæmdaratriði og fjárhagslega möguleika til að reisa húsið. Verður stærð
þess rúmir 300 fermetrar að flatarmáli og fimm hæðir auk kjallara, og er áætlað að bygg-
ingin kosti fullgerð upp undir finun miljónir króna og allt að tveim miljónum að koma
henni undir þak. Hluthöfum Vegamóta er ljóst að þeir munu af eigin rammleik verða að
leggja fram þær tvær miljónir króna sem þarf til að gera bygginguna fokhelda, en telja
allar leiðir færir eftir það. Fyrsti áfanginn, að koma húsinu undir þak, er með öðrum orð-
um stærsta átakið sem um leið ræður úrslitum. Gömlu húsin sem á lóðinni standa eru
leigð til 1. október í liaust, en eftir það er hægt að hefjast handa með framkvæmdir og
vilja Vegamótamenn kappkosta að byggingin geti risið viðstöðulaust og ekki þurfi að
standa á fé til að gera hana fokhelda.
I starfi Máls og menningar hefur oft sannast að margar hendur vinna létt verk, að með
nógu fjölmennum samtökum er auðvelt að gera stórt átak. Jafnvel efnalitlir einstaklingar
kcma sér þaki yfir höfuð. Hví skyldu þá ekki fjölmenn samtök eins og Vegamót og Mál
og menning geta í sameiningu reist eina byggingu þótt hún kosti á við átta eða tíu íbúðar-
hús?
Hluthafar í Vegamótum eru um 180. Ef hver þeirra gæti lagt fram eða útvegað 10 þús-
und kr. að meðaltali væri upphæðin komin til að gera bygginguna fokhelda. Af þeim tveim
miljónum sem til þess þarf yrðu 500 þús. kr. að vera handbærar 1. okt. í haust, ein miljón
fyrir áramót og öll upphæðin fyrir 1. maí 1958. Þetta þýðir að hver hluthafi að meðaltali
yrði að hafa einhver tök á að útvega eða leggja fram 2500 kr. fyrir 1. okt., önnur 2500 fyrir
áramót, og 5 þús. kr. til viðbótar fyrir 1. maí næsta ár.
Auðvitað er okkur ljóst að ýmsir hluthafar hafa ekki þær aðstæður að geta lagt frain
85