Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Blaðsíða 14
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
innan um og saman við fjölstefnuaksturinn. Hans lífsólán hélt sína innreið,
þegar hann féll frá Tesunum. Svo snarborulega kúvendingu hefur ekkert sál-
arskip þolað án þess að híða ævilangt tjón á máttarviðum sínum.
Við höfum verið kunningjar síðan vorið 1916, þegar ég sagði honum
ofurlítið til í íslenzku undir stúdentspróf, í stofu Jónatans. Samt sem áður
hefur Júnesen gert mér mest illt af öllum mönnum. Ég las yfir fyrir hann
handritið að Bókinni um dyggðina og veginn og síðan próförk. Litlu seinna
kemur heim til mín í pósti, að mér algerlega óvörum, tilkynning frá lands-
bankanum, að Júnesen hefði borgað upp skuld mína við bankann. Þá small
botninn úr minni jarðlífshugsjónatilveru, eins og íslendingar í Kanada
myndu komast að orði, og ég sat eftir í botnlausu tómi. Skuldin var það
eina, sem ég hafði til að lifa fyrir, það eina, sem gaf lífi mínu tilgang, mín
einasta lífshugsjón, minn eini lífsstímúlans. Ég elskaði hana, og ég hafði ásett
mér að halda henni við hægt deyjandi makt á meðan ég lifði, með því að
borga af henni 50 krónur á ári. Þá mundi standast á endum líf okkar beggja.
Síðan hefur líf mitt verið 100% tilgangslaust.
Júnesen hefur gert mér aðra glennu, þó ekki eins drepandi og skuldar-
morðið. Hann er sem sé eini maður í heimi, segi og skrifa skíruni stöfum
eini maðurinn, sem ég hef haft áhrif á. Árið 1918, þegar hann kom heim frá
Kaupmannahöfn, lotinn í herðum og lítt rólfær eftir ævintýrið í Rutsche-
banen, fór ég að vekja hann til áhuga á yogavísindunum og léði honum Den
personlige magnetisme. Merkilegt nokk og aldrei þessu vant, þá féll þetta
litla fræ ekki í grýtta jörð. Fáum vikum seinna gekk Júnesen eins og Hannes
Hafliðason og sprækur í spori.
Af þessum lágsvæðum yoga sté hann hægt og hægt upp til hinna andlegri
vísinda, sem hann hefur stúderað meira eða minna alla tíð síðan í bland með
fjölstefnuakstrinum. Fyrir þessar stúderingar hafa honum áunnizt ýmsar skil-
vitlegar og yfirskilvitlegar náðargáfur, svo sem mýkt Bjarna Jenssonar í
göngulagi, transfall, fjarskynjunargáfa, sjúkdómsgreiningaskyn, lækninga-
kraftur og heitir og kaldir pústrar hér og þar á líkamann. Ennfremur hafa
honurn opnazt farvegir upp til háþróaðra vitsmunavera, til dæmis kínverska
spekingsins og Arabans og órofa sambands við systur konungsins í vestrinu,
að þeirri mannlegu náttúru ógleymdri, að ég, sem kom þessari veltu af stað,
er nú kallaður lærisveinninn.
92