Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 37

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 37
EUGENE O’NEILL carot: GuS hjálpi þér! Guð hjálpi þér. (Hann fer út úr eldhúsinu, en kemur að vörmu spori ajtur) Hvers vegna gerðir þú það! Hvers vegna? Ég spyr þig hvers vegna þú gerðir það! Það væri betra fyrir þig að segja mér það eða ... ! abbie: Þú skalt ekki voga þér að snerta mig! Hvaða rétt hefur þú til að yfirheyra mig um hann! Hann var ekki sonur þinn! Heldurðu, að ég vildi eiga barn með þér? Ég vildi fyrr deyja! Ég get ekki þolað þig nálægt mér og hef aldrei getað það! Það ert þú, sem ég hefði átt að myrða, ef ég hefði haft nokkurt vit! Ég hata þig! Ég elska Eben, og hef gert það frá því fyrsta. Hann var sonur okkar Ebens — en ekki sonur þinn! cabot: Það var það — sem ég fann — að eitthvað væri verið að pukrast á bak við mig — á meðan þú laugst að mér — hélzt þér frá mér — og sagðist þegar vera orðin þunguð — Hann er dauður, það er víst. Ég þreifaði á hjartanu. Veslingurinn litli! abbie: Segðu þetta ekki! Segðu þetta ekki! cabot: Ég verð að vera eitilharður — ég verð að vera eins og drangur! Ef hann var sonur Ebens, er ég feginn, að hann sé farinn! Kannski grunaði mig það alltaf. ' Ég fann, að það var eitthvað óeðlilegt á seyði — einhversstaðar — það varð svo einmanalegt hér í húsinu — og kalt — að ég hrökklaðist út í fjós — til kúnna ... Já. Mig hlýtur að hafa grunað — eitt- hvað. Þið göbbuðuð mig ekki algjörlega, að minnsta kosti — ég er of gamall og reyndur til þess ... Svo þú hefðir frekar viljað drepa mig en hann? En ég á eftir að verða hundrað ára! Ég á eftir að sjá þig hengda. Ég framsel þig guði og lög- unum! Nú fer ég að sækja fógetann. abbie: Þú þarft ekki að ómaka þig. Eben er farinn til þess. cabot: Er Eben farinn að sækja fógetann? abbie: Já. cabot: Til að kæra þig? abbie: Já. cabot: Jæja, ég er honum þakklátur fyrir að spara mér ómakið. Ég ætla að fara að vinna. Hann hefði átt að vera sonur minn, Abbie. Þú hefðir átt að elska mig. Ég er karlmaður. Ef þú hefðir elskað mig, hefði ég aldrei kært þig fyrir neinum fógeta, hvað svo sem þú hefðir gert, jafnvel þó þeir hefðu ætlað mig lifandi að drepa! abbie: Það er önnur og meiri ástæða til þess en þig grunar. cabot: Ég vona að það sé þín vegna. Guð minn góður. Ég verð meira einmana en nokkru sinni fyrr! (Eben kemur inn) Sagðir þú fógetanum það? eben: Já. cabot: Gott hjá þér! Þú ert sannarlega lif- andi eftirmynd hennar mömmu þinnar! Hypjaðu þig burt af landareign minni, þegar fógetinn fer með hana burt — eða, ég sver, að hann verður þá að gera sér aðra ferð hingað til að taka mig líka fyr- ir morð! eben: Fyrirgefðu mér! abbie: Ó, Eben (IIún kyssir hann). eben: Ég elska þig. Fyrirgefðu mér! abbie: Ég gæti fyrirgefið þér allar syndir helvítis fyrir að segja þetta! eben: En ég sagði fógetanum það. Hann kemur að sækja þig! abbie: Ég get afborið það, sem á eftir að koma fyrir mig ... núna! eben: Ég vakti hann. Ég sagði honum það. Hann sagÖi: „Bíddu á meöan ég klæði mig.“ Ég beið. Ég fór að hugsa um þig. Ég fór að hugsa um hvað ég elskaöi þig mikið. Mér fannst það svo sárt eins og eitthvað væri að springa í brjóstinu og höfðinu. Ég fór að gráta. Ég vissi allt í einu, að ég elskaði þig ennþá, og mundi alltaf gera það! 115
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.