Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Page 33
EUGENE O’NEILL
ur og treystir þér! Ó, hvernig gaztu gert
pabba þetta? Hvernig gaztu það?
christine: Þú myndir skilja það, ef þú
værir kona manns, sem þú hatar.
lavinia (skelfd — horjir á myndina aj jöð-
ur sínum): Nei! Segðu þetta ekki frammi
fyrir honum! Ég vil ekki hlusta á þig!
christine: Þú skalt verða að hlusta á mig.
Ég tala við þig sem kona við konu, ekki
eins og móðir við dóttur! Hvorug okkar
virðir þann skyldleika mikils hvort sem
er! Þú hefur sagt, að ég væri auðvirðileg
og blygðunarlaus! Jæja, ég vil að þú
vitir, að mér hefur líka fundizt ég vera
það í öll þessi tuttugu ár, sem ég hef gef-
ið mig á vald manni, sem ...
lavinia: Segðu ekki meir! Slepptu mér! Þú
— þá hefur þú alltaf hatað pabba?
christine: Nei. Ég elskaði hann einu sinni
— áður en ég giftist honum — þótt ótrú-
legt megi virðast! Hann var glæsilegur í
einkennisbúningnum sínum! Hann var
þögull, dulur í skapi og rómantískur! En
hjónabandið breytti brátt ástúð hans í
gagnkvæma úlfúð.
lavinia: Og úlfúð þín hefur fylgt mér allt
frá fæðingu! Ég hef alltaf þótzt vita,
mamma — allt frá því ég var lítil — þeg-
ar ég kom til þín með blíðu mína —
varstu vön að hrinda mér frá þér! Ég hef
alltaf fundið þessa úlfúð þína frá því ég
man eftir mér. Ó, ég hata þig. Það er ekki
nema rétt, að ég skuli hata þig!
Það er ekki eingöngu afbrýðisemi, sem
stjórnar orðum dótturinnar og gjörðum,
heldur líka umhyggja hennar fyrir því að
mannorð ættarinnar haldizt óflekkað.
Kristín og Adam Brant brugga síðan
Ezra Mannon fjörráð saman. Kristín frem-
ur svo morðið viku síðar. Af ásettu ráði
segir hún fyrst manni sínum allan sannleik-
ann um ástamál þeirra Adams. Þessi ógna-
fregn veldur því, að hann fær fyrir hjartað
eins og hún vissi að hann átti vanda til, en
í stað þess að rétta honum meðalið, sem
hann biður um, gefur hún honum eitur. En
áður en hann gefur upp andann, ryðst
Vinnie inn í herbergi foreldra sinna og
heyrir ásökunarorð föður síns á hendur
móður sinni.
Þegar Orin kemur heim tveimur dögum
síðar hefst heiftug togstreita á milli
mæðgnanna, því að báðar vilja þær beygja
hann og láta hann lúta sínum vilja. Átök-
in magnast og fer svo að lokum, að Orin
snýst á sveif með systur sinni jafnskjótt og
hann fær vitneskju um framhjáhald og
tryggðarof móður sinnar. Orin myrðir frið-
il móður sinnar ekki einungis til að koma
fram hefndum fyrir föður sinn, heldur líka
til að ryðja keppinaut úr vegi, því að í
hjarta sínu ber hann óeðlilega ást til móð-
ur sinnar. Er Kristín heyrir, að elskhugi
hennar hefur verið myrtur, fremur hún
sjálfsmorð og á því endar miðhluti þrí-
leiksins. í stað refsinornanna, sem ofsækja
Órestes fyrir móðurmorðið í gríska harm-
leiknum, lætur 0’ Neill koma samvizkubit
og sektarvitund, sem leiða Orin að lokum
til hálfgerðrar sturlunar. Það væri ekki
fjarri lagi að segja, að þetta sýkta sálar-
ástand hans sé í rauninni ekki annað en
refsiaðgerðir refsinorna í nútímabúningi.
Orin sakar fyrst sjálfan sig fyrir sjálfs-
morð móður sinnar og svo verður honum
fljótt Ijóst, að tilfinningar þær, sem vakna
nú í brjósti hans til Vinnie eru ekki síður
syndsamlegar en þær, sem hann bar til móð-
ur sinnar. Enda hefur systir hans, sem hafði
reynt að verða kona föður síns og móðir
Orins, fengið bæði svipmót og látbragð
móðurinnar. Hún gengur ekki heldur þess
dulin hvaða hug Orin ber til hennar. Vitn-
eskja þeirra beggja um þetta ófremdar-
ástand, sárar sektartilfinningar og örvilnun
Orins valda því, að hann kýs heldur að
stytta sér aldur, heldur en að verða að leik-