Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Síða 70
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
gætt þeim húmanisma, þeirri mann-
úð, sem verið hefur draumur mann-
kynsins um aldaraðir. Mistök og
réttarmorð hinnar miklu frönsku
byltingar eru að vísu Ijótir blettir á
skildi hennar, en þau fá ekki dregið
úr sögulegu mikilvægi þessa við-
burðar né mannfrelsishlutverki
þeirra félagslegu umskipta, er bylt-
ingin hefur valdið. Sama máli gegn-
ir ekki síður um hinar sósíalísku
byltingar, nema meira sé. Því að
þótt öll saga mannlegs heims sé
mannsins verk, þá skiptir hin mark-
vísa athöfn mannanna á hinu sósíal-
íska skeiði enn meira máli en á fyrri
öldum, og því verður ábyrgð mann-
anna meiri. Og því verða allir þeir,
sem taka sér fyrir hendur að koll-
varpa og umbreyta auðvaldsskipu-
lagi nútímans og skapa heim sósíal-
ismans að gera sér grein fyrir þeirri
ábvrgð, sem fólgin er í þessu ægi-
mikla hlutverki og láta ekki þunga
þess tæla sig til ódæðisverka.
Ég var spurður um það, þegar ég
kom frá Austur-Þýzkalandi um sama
leyti og stórtíðindin gerðust í Ung-
verjalandi, hvort ekki mætti búast
við öðrum slíkum í Þýzka alþýðu-
lýðveldinu. Ég sagðist vera sann-
færður um, að ef til óeirða drægi
þar, mundi vera stofnað til þeirra af
hálfu aðila utan landamæranna. Og
sú sannfæring hefur ekki haggazt við
það, sem síðar hefur orðið. Mér er
það alveg ljóst, að Þýzka alþýðulýð-
veldið hefur leyst efnahagsleg og fé-
lagsleg vandamál, sem lengi hafa
beðið lausnar í þýzkri sögu. Prúss-
nesku junkararnir voru sviptir stórbú-
um sínum og jörðinni skipt milli
smábænda og vinnumanna. Hinir
miklu auðhringar voru leystir upp
og fyrirtækin þjóðnýtt. Félagsmála-
löggjöfinni var komið í nýtt og betra
horf, atvinnuleysi útrýmt með öllu.
Loks hefur stóriðjan verið alefld svo,
að nú er Þýzka alþýðulýðveldið 5.
stærsta iðnaðarland í Evrópu. Allt
eru þetta mikil afrek, og valdhafarn-
ir mega með sanni vera stoltir af
þeim. En þetta hefur ekki verið
hnökralaus þróun. Það þarf ekki
annað en benda á hinn mikla fjölda,
sem flutt hefur frá Þýzka alþýðulýð-
veldinu til Vestur-Þýzkalands, til
þess að sjá, að óánægja hefur ríkt
meðal sundurleitra þj óðfélagsstétta
alþýðulýðveldisins, að það hefur
ekki megnað að veita öllum viðun-
andi kjör. Meirihluti þessa fólks hef-
ur að sjálfsögðu flutt búferlum
vegna þess, að þeir töldu sér annars
staðar betur vært en í sósíalísku
landi, aðrir hafa látið ginnast af hin-
um taumlausa áróðri Ameríkana og
Vestur-Þýzkalands, en hinir eru ekki
heldur fáir, er hafa lagt land undir
fót fyrir sakir harðneskju hinna
austurþýzku yfirvalda og stjórnmála-
legs fruntaskapar. Þetta hafa ábyrgir
austurþýzkir stjórnmálamenn játað.
Eftir viðburðina í Ungverjalandi
148