Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Page 103

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Page 103
DMSACNIH UM ÉÆKUft hugsunum sem stríða á okkur. Svo mun um fleiri: ])á sem eldri eru en við, að ég nú ekki tali um hina yngri, sem mikið skáld hefur öðrum mönnum fremur gullið tæki- færi að tala til og nánast skyldur við. Ég tel vafasamt, að höfundur slíkur sem H. K. L. skrifi bók án tilgangs. Tilgangur- inn með Brekkukotsannál er vafalaust margþættur og m. a. sá að skírskota til hins eftirsóknarverða í fábreyttu lífi, óspilltum hugsunarhætti, og umhverfi fjarri því tildri og þeim mannskemmandi skarkala sem ein- kennir t. d. þann höfuðstað íslands, sem orðinn er, um miðja þessa öld. En — skír- skotun vafin þeim umbúðum sem Brekku- kotsannáll er, fær tæplega þann hljómgrunn sem ætlazt er til og hún á skilið. Það er leiðinleg staðreynd, en staðreynd eigi að síður. Venjulegum lesanda getur hæglega yfirsézt, að um nokkra skírskotun sé að ræða; já, jafnvel bókmenntaspekingi. Að vísu opnar enginn svo skáldverk eftir H. K. L., að hann fái ekki nokkuð fyrir snúð sinn. En það er þó einu sinni svo, þrátt fyrir allt sem sam-mannlegt má teljast með öllum þjóðum, jafnvel á öllum tímum, að nútími í symbóli og gerfi hins liðna er ærið tor- fundinn fyrir venjulegan mann yfirleitt; kannske einkum og sér í lagi fyrir þá kyn- slóð sem nú er að vaxa úr grasi og finnst allt það sem gamalt er harla fjarlægt — en svosem nógu tilvalið að hlæja að, ef hægt er. Og það er svo sannarlega hægt að hlæja við lestur Brekkukotsannáls, og hlátur í sjálfu sér mjög hollur, auk þess sem hann getur borið vott um eitt aðalsmerki full- þroska manns: kímnigáfuna. Það er líka gott og blessað, að H. K. L. ætli beinlínis með annál sínum að fá okkur til að gleyma um stund því sem hrollvekjandi er á marg- nefndri Öld Kjarnorkunnar yfir græsku- lausu skopi. Einn ritdómari hefur gengið það langt að fullyrða, að slíkt muni vera höfuðtilgangurinn með verkinu, en það leyfi ég mér að efa. Menn fá það út úr bók- um sem þeir vilja; öllu heldur: það sem þeir eru menn til. Á sama hátt eru skoðanir skiptar um það, hvers ætlast beri til af höfundum. Eitt af því, sem manni hættir til að krefjast af slíkum sem H. K. L. er það, að hann skrifi ekki svo bók, að hún sé ekki stórvirki, helzt meira öllu sem hann hefur áður gert. Við höfum nefnilega vanizt því; þróun hans hefur verið slík, og við trúum því hún verði það enn um skeið, eins og samkvæmt lög- máli, hvort sem skynsamlegt er eða réttlátt að ætlast til þess. Svo óvenjulegur er hann meðal höfunda. Mér finnst þó fyrir mitt leyti ekkert undarlegt, þótt stórskáld sem hann skrifi bók slíka sem Brekkukotsannál — e. t. v. sér til hvíldar frá stærri verkefn- um — því það er trúa mín, að í framtíðinni skipi hún sess sem einskonar hugþekkt interludium in modo antico milli viðameiri þátta í þeirri hljómkviðu sem heildarverk hans er, þeirra sem þegar eru samdir og hinna sem hann á óskrifaða enn. Og ekki verður því heldur á móti mælt, að einmitt með þessari bók hefur hann að sumu leyti bætt við sig, endaþótt freistandi sé að benda á hið gagnstæða, svo sem hér hefur verið reynt. Hvað sem um allt þetta má segja, vil ég þó ekki ljúka máli mínu án þess að bera fram eina ósk. Ég ber hana reyndar ekki fram sem rithöfundur, því það hvorki get ég né ferst mér að gera; heldur sem hver annar lesandi örfárra bóka, sem ég reyni yfirleitt að velja af betra taginu. Sú ósk er: að H. K. L. skrifi nútímaskáldsögu, í öllum merkingum þess orðs; aktúela túlkun þess tíma sem við lifum á, þess umhverfis sem við skynjum, þeirra viðhorfa sem nú ríkja, og vandamála sem við blasa á miðri tuttug- ustu öld. Engum höfundi er betur treyst- andi til þess en honum, að ég hygg. Kemur þar allt til, og þarf ekki frekar rökstuðnings 181
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.