Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Page 4

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Page 4
TIMARIT MALS O'G MENNINGAK er skipaff hefur menningu og vísindum fyrirrúm í þjóðfélagi sínu, skyldu fyrstir vinna þessa sigra. En hugsjónir og vísindi spyrja ekki að landamærum, eru í eðli sínu alþjóðleg, sameiginlegur ávöxtur af hugvitsstarfi mannsins. Hvar í heimi sem þessir sigrar vinnast eru þeir sigrar mannsandans í heild, sameign þjóða, uppspretta fagnaðar og melnaðar hverjum manni á jörðu. Margur segir: maður líttu þér nær! Ilvað um öll liin óleystu vandamál í samhúð manna á jörðu, örhirgðina, tortryggnina og hatrið sem enn ríkir? Er þjóðunum ekki nær að leysa vandamál sín heima fyrir áður en þær taka gönuskeið út í geiminn? En þessi þróun er eðlileg og óhjákvæmileg. Mannlegar framfarir hafa aldrei falizt eingöngu í því að leysa úr aðkallandi hversdagslegum þörfum heldur grundvallazt jöfnum höndum á draumum manna og vængjuðu ímyndunarafli, á sköpunargáfu þeirra sem sjá út fyrir hversdagsþarf- irnar inn í þá undraveröld sem framtíðin ber í skauti sér. Og um leið og vísindasigrar þessa árs lyfta huga mannkynsins frá jörðu, flýta tímanum um fimmtíu ár og kollsteypa mönnum inn í 21. öldina, eins og franska hlaðið Les Echos hefur komizt að orði, bregða þeir nýju ljósi á vandamál mannfélagsins og setja mannkyni öllu úrslitakosti. Þróun vísindanna er með öðrum orðum komin á það stig að mannkynið hefur um tvennt að velja: tortímingu eða láta af allri hugsun um styrjöld og valdbeitingu en skapa sér bræðralag á jörðu, öll ríki, allar þjóðir. Þessa tvo kosti sjá nú allir hugsandi menn og þeir kveðja sér hljóðs í öllum löndum, ekki sízt í Bandaríkjunum. Eftir að Sovétríkin gáfu í sumar út tilkynningu sína um hinar langdrægu eldflaugar, sem skjóta má milli landa til hvaða staðar á hnettinum sem vera skal, og eftir að þau staðfestu að þau réðu yfir slíkum eldflaugum með því að skjóta á loft gervitunglunum, hafa viðbrögð manna með öllum þjóðum verið á eina lund: ný styrjöld jafngildir tortímingu þar sem ekkert ríki ber sigur- orð af öðru. Svar við hinni nýju tækni er aðeins eitt: friðsamlegt samkomulag um öll deilumál. Herstöðvakerfi Bandaríkjastjórnar, sem komið hefur verið upp með miklu hram- bolti og ærnum tilkostnaði umhverfis Ráðstjórnarríkin frá því síðari heimsstyrjöldin stóð, varð úrelt og tilgangslaust á einni nóttu, og eingöngu ógn og voði þeint löndum sem sitja uppi með þessar stöðvar. Með þeim vísindasigrum sem unnizt hafa eiga menn ekki nema eins úrkosti að laga stjómmálaskoðanir sínar eftir hinum nýju staðreyndum, að brúa það djúp sem er staðfest milli nútíma vísinda, sem umskapað geta allt líf til farsældar á jörðu, og uppidagaðrar hernaðarstefnu sem felur ekki í sér nema dauðann. Og hví skyldu menn ekki fást til að velja lífið? Adlai Stevenson, forsetaefni demokrata í Bandaríkjunum, segist neita því að gervitungl- in rússnesku flytji hoð um nokkrar ógnanir, heldur setji kosti um að velja leiðir og taka ákvörðun. Ilann segir: „Nú, eitt skipti enn, hafa vísindin knúið mannkynið út á vegamút þar sem engin leið er að snúa aftur, engin undankomuleið — og aðeins einn vegur liggur upp á við. Urn tvennt er að velja: annaðhvort tortímingu — eða mannlegt bræðralag sem verið hefur hugarsýn allra sjáenda frá upphafi vega.“ Einmitt friðarleiðin með þá undratækni sem menn hafa nú á valdi sínu boðar mannkyn- inu dýrlegri daga en það hefur dreymt um áður. Sjálfvirknin sem er að verða tímans tákn getur létt af mönnum öllu striti og kjarnorkan, hagnýtt í friðsamlegum tilgangi, gert manninn að drottnara örlaga sinna, bæði gefið honum vængi til að fljúga á út í geiminn og fá kynni af íbúum ókunnra stjarna, og vald á að útrýma örhirgð, ranglæti og kúgun og umbreyta á skömmum tíma lífi allra þjóða í hagsæld og fögnuð. 194
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.