Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Qupperneq 6
Ávarp til íslenzku þjóðarinnar
EINS og alþjóð er kunnugt samþykkli Alþingi Islandinga hinn 28. marz
1956 ályktun um að endurskoðun herstöðvasamningsins frá 5. maí 1951
skyldi fara frarn með það fyrir augum að bandaríski herinn jæri úr landi. 1
þingkosningunum 24. júní 1956 veitli þjóðin þremur af þeim flokkum, er að
samþykktinni stóðu, meirihlutavald á Alþingi til að framkvœma stefnuyfir-
lýsingu sína. I júlímánuði 1956 mynduðu jlokkar þessir ríkisstjórn þá, sem
nú siiur að völdum, og var í málefnasamningi stjórnarflokkanna heitið að
fylgja- jram áðurnefndri ályktun Alþingis. Á því hafa ekki orðið efndir enn.
í desembermáhuði 1956 tilkynnti ríkisstjórnin, að viðrœðum við Bandaríkin
um endurskoðun samningsins hefði verið frestað. Síðan hejur ekkert gerzt í
málinu svo vitað sé.
Við undirrituð viljum ekki una þessari málsmeðferð. Við teljum ríkis-
stjórnina og stuðningsflokka hennar bundin af ályktun Alþingis frá 28. marz
1956, loforðum stjórnarjlokkanna í seinuslu þingkosningum og málefnasamn-
ingi þeim, sem stjórnarsamstarjið byggist á. Þess vegna krefjumst við þess,
að málið verði þegar í stað tekið upp af nýju, endurskoðun fari fram og her-
inn víki úr landi að lögskildum fresti liðnum.
Við heitum á þjóðina að þreytast ekki, en sœkja rétt sinn af einurð og
festu. Við heitum á fólkið í landinu að rísa upp, maður við mann, og jylkja
liði í þeirri baráttu fyrir brottför liersins, sem hafin er að jrumkvæði íslenzkra
rithöfunda. Unum engum málalokum öðrum en þeim: að þing og stjórn
standi við heit sín og herinn fari.
Anna Guðmundsdóttir, bókavörður
Anna Sigurðardóttir, frú
Árni Böðvarsson, cand. mag.
Ásgeir Karlsson, stud. mag.
Ásmundur Sveinsson, myndhöggvari
Auðunn Guðmundsson, stud. jur.
Baldur Jónsson, stud. mag.
Barbara Árnason, listmálari
Benedikt Gunnarsson, listmálari
Bjarni Benediktsson frá Ifofteigi
Björn Th. Björnsson, listfræðingur
Björn Þorsteinsson, sagnfræðingur
196