Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Side 19

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Side 19
RÆÐA Upptalning þessi er nú lengri orðin en ætlað var — og þó margt ónefnt. Ekki kann ég að dæma um verðleika alls þess, er hér var talið, enda fjarri því að ég hafi lesið það allt eða rýnt niður í kjölinn. Og sumt af þessu kann að láta lítið yfir sér. Þarna eru formálar, sem fjalla um heimildamat, handritasam- anburð, rittengsl, lesafbrigði — og svo margskonar skýringagreinar. — Þessháttar hlutir kunna að þykja leiðigjarnir, en kosta oft langa leit og mikla vinnu. Og slík er sú undirstaða, sem saga íslenzks fólks, bókmennta þess og tungu hlýtur að hvíla á. Af slíkum grunni verða allar stórar sýnir í sögu þjóðar okkar og bókmennta að rísa. Það eru til bækur, þar sem allt er á fyrslu síðu, og aðrar, sem leyna á sér. Eg skal nefna það t. d., að framan við fornnorræna orðabók þeirra Hæg- stads og Torps (1909) er ritgerð eftir Torp um fornnorræna orðmyndun; hún er stutt, um 40 bls. En ég les þessa ritgerð oft á ári — og finn þar alltaf eitthvað nýtt og nýtilegt. Hún leynir á sér. Og það vil ég ætla af þeim kynnum, sem ég hef af ritum Jakobs Benediktssonar, að þau séu í þeim flokknum. Hitt má öllum vera ljóst, er eitt- hvað hafa kynnzt ritstörfum Jakobs Benediktssonar eða manninum sjálf- um, að hann er óvenjulega fjölvís og víðlesinn, — nokkurs konar encyclo- pedisti eða fjölfræðingur á öld þröngrar sérmenntunar. Hann er lærður i klassiskum fræðum, en jafn- framt mætavel að sér í íslenzkri sögu og bókmenntum. Hann er lærður í fornri sögu og málum, en kann ágæt skil á veraldarsögu síðari tíma og al- mennum málvísindum, — jafnvel helztu nýjungum á því sviði. Það kemur stundum fyrir, að ég er að spyrja hann mér til fróðleiks um ýmislegt úr sagnfræði eða bókmennt- um. Kannski man hann ekki alltaf ár- tölin upp á hár, en hann veit hvar at- burðirnir eiga heima, kann að skipa atriðum á sinn stað. Það er eins og hann hafi numið tón og angan hvers tímabils, ef svo má að orði kveða, eigi í huga sér mynstur þess og innri rök. Slíkt söguskyn er jafnan ávöxtur ríkrar og staðgóðrar menntunar. Jakob er fræðimaður, en þó jafn- framt nákunnugur í ríki listanna, og hefur m. a. bundið mikla ást við þokkagyðju hljómlistarinnar. Og ég held mér sé óhætt að segja, að hann hafi einnig áhuga á náttúruvísindum og tækni — og næmt eyra fyrir því, sem þar gerist. Kannski er okkur og veröldinni í heild meiri þörf á þessháttar fjölfræði nú en nokkru sinni fyrr, þörf á þeim húmanisma, sem telur sér ekkert mannlegt óviðkomandi. Og á ég þar ekki eingöngu eða fyrst og fremst við kynni og fróðleik frá ólíkum sviðum, heldur þetta skyn um eininguna í TÍMARIT MÁI.S OG MENNINGAR 209 14
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.