Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Síða 52

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Síða 52
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR hvarf Þórlyndur og kom ekki fram fyrri en að morgni annarrar nætur. Var hann þá þungbúnari en fyrr, en gekk að verkum án þess að eiga orða- stað við konu sína. A þriðja vetri tók úr fjörunni skektu Þórlyndar. Rak hana við Skálanípu og brotnaði í spón. Tók Þórlyndur þá að stunda al- menna verkamannavinnu inni á Ingi- mundarvík, fargaði kindum sínum og hestum, en setti tvær kýr á. Ástvaldur hét sonur Þórlyndar eft- ir móðurafa sínum, breiðfirzkum. Var liann af mörgum talinn verrfeðr- ungur hvað snerti verksígirni, þótti og í flestu bregða til föðurkyns. Var það haft til marks um einurðarleysi hans til allra starfa, að þrettán ára gamall hafði hann ekki áralagið og þegar nýræktarframkvæmdir hófust, var hann þrjár vikur að læra að fletta þökum skammlaust. Líkt var farið löngun hans til verka. Þó að Bugtar- fólkið berðist í bökkum, tókst Þór- lyndi ekki að aka syni sínum í vinnu nema endur og sinnum, þaðan af síð- ur að hann gripi í hrífu ótilkvaddur, þó um hásláttinn væri, eða slægist í för með jafnöldrum sínum, er þeir reru eftir ufsa um helgar. Ástvaldur í Bugt, eða Addi með fótinn eins og hann var kallaður, — því að hann stakk lítið eitt við hægra fæti, — hafði aftur á móti ofsafengið dálæti á bókum, eða það höfðu menn fyrir satt. Kaffikonur móður hans sáu honum stundum bregða fyrir með bókarslitur ýmiskonar undir hend- inni, kæmi það fyrir, að honum væri hleypt inná heimili betra fólks, varð honum löngum starsýnt á bókahillur og skápa, gerðist jafnvel svo djarfur að þiggja bækur að láni hjá málsmet- andi mönnum á Ingimundarvík. Nú var það auðvitað gömul saga í kauptúninu, að ráðleysingjar rétt- lættu ódugnað sinn með bóklestri. Sérhver óverklaginn letingi flaggaði menntunarþrá sinni sem kennimerki allra þeirra, er hatur hefðu á nytsöm- um störfum. En ýmsir höfðu þó kom- izt á þá skoðun, að Ástvaldi Þórlynd- arsyni mundi í raun og veru margt vel gefið, þó að hann brysti hvatleika til torfristu og skaks. Meðal annars hafði sóknarpresturinn látið þau orð falla, að eitthvað myndi í drenginn spunnið, ritstjóri dagblaðs nokkurs af suðurfjörðunum hafði átt orðastað við drenginn, og síðar var það haft eftir honum, að þetta væri greindur piltur og víðlesinn, og ungur barna- kennari, nýfluttur í bæinn, var þess eindregið fýsandi, að Ástvaldur Þór- lyndarson brytist til mennta og yrði lærður maður. Jafnframt því sem þessu áliti manna á drengnum óx fiskur um hrygg ágerðist breyting á allri hegð- un hans, svo að um síðir nálgaðist full umskipti. Hann lagði niður at- orkuleysi sitt, gerðist með afbrigðum vinnufús, lagðist í sjóróðra á opnum vélbátum, sem þá voru nýfluttir til 242
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.