Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Síða 60

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Síða 60
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR vera langsýn og skýr. Sovézk menning er ekki nein dægurfluga. Hún er víð- tækt fyrirbæri í sögunni og verður ekki varpað til hliðar í móðgunar- kasti. Það getur létt á hjarta manns að skrifa bækling, en bæklings sem beitt er gegn mikilli hugsjón bíður ^ðeins það að verða níðrit. Fyrir fimm árum var allt sem kom frá Sovétríkjunum, lélegar smásögur, þeimskulegar kvikmyndir og hvað eina, dáð af vestrænum menntamönn- um sem í dag varpa efa á allan árang- ur sovézkrar menningar. Þeir minna á menn sem hafa orðið fyrir ásta- sorgum. Ymis góð sovézk verk liafa orðið skerfur í heimsmenningunni, en mig hefur oft furðað á því, þegar ég er að lesa himinhrifnar greinar um annars flokks sögur, eða um f j öldaframleiðslu miðlungsmálara, eða um „Fall Berlínar“. hvernig fólk sem dáir og skilur list, geti hrifizt af þess háttar framleiðslu. Margir þess- ara jafnvægislausu ákafamanna eru nú teknir að tala um fánýti sovézkra bókmennta og sovézkrar menningar. Sósíalismi er engin trúarbrögð, heldur er hann reistur á skynsemi, samvizku, vísindum og réttlætiskennd þeirri sem er mannkyninu lífsnauð- syn. Að dá sovézkt samfélag eða sov- ézka menningu þarf ekki að eiga neitt sameiginlegt með óskeikulleikakenn- ingum né bókstafstrú. Vestrænir menntamenn sem dáðu okkur í gær og eru nú byrjaðir að efast um mats- grundvöllinn, þegar við segjumst vera að bæta úr fyrri mistökum, sýna með því andlegan vanþroska sinn. Hugs- unin er engin daðurdrós sem gengst upp við einnar stundar smjaður, held- ur krefst hún meðvitaðrar starfsemi. Við ætlum ekki að hætta að gagnrýna galla okkar og mistök vegna þess eins að það kunni að koma illa við eða jafnvel umhverfa vestrænum mönn- um. Við þörfnumst ekki „blindrar“ ástar, heldur hugsandi ástar, þeirrar sem fólkið og menningin eiga skilið. Meðal vestrænna menntamanna sem nú hafa lent í uppnámi eru ýmsir sem ekki verður efazt um einlægnina og stöðuglyndið hjá. Þeir eru and- stæðir baráttunni gegn kommúnisma. en ruglast við það að sumt í þeirri baráttu á sér hljómgrunn í þeirra eig- in brjóstum. Þeir mundu vilja hugsa málin í heild, en hugur þeirra snýst aftur og aftur að ákveðnum dreifðum atrið- um. Þegar ég hef rætt við rithöfunda frá Frakklandi, Ítalíu og öðrum vest- rænum löndum, hafa þeir aftur og aft- ur komið að hinu sama: einhverju rotnu riti, heimskulegri kvikmynd eða einhverju öðru tíu ára gömlu. Þeir höfðu þá ekki verið hrifnir af sög- unni eða myndinni, en þá hafði ekki heldur annað gerzt en þeir urðu fyrir einnar stundar óánægju vegna lélegs listaverks, og það var allt og sumt. Nú hvarflar hugur þeirra til baka til fyrri áhrifa, þeir eru gramir yfir þeim 250
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.