Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Side 93

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1957, Side 93
EINMANA MAÐUR? Ræða Chaplíns var hirt í öllum blöðum Bandaríkjanna og hún vakti geysilegar deil- ur. Sannindi þau sem hún hafði að geyma voru ekki vel séð í Wall Street. Að halda því fram að „Rússland væri síðasta víglína lýðræðisins (og menningarinnar)“, var miklu víðtækari yfirlýsing en umræða um aðrar vígstöðvar. Þó var erfitt að útskúfa Chaplín fyrir þessa ræðu. Hún túlkaði tilfinningar veru- legs hluta bandarísku þjóðarinnar. Þess vegna varð að grípa til annarra ráða til þess að þagga niður í þessum áhrifaríka manni. Einkalíf hans var tekið fyrir. Siðlæti eða blygðunarsemi er hið sígilda vopnabúr stjórnarvaldanna í Bandaríkjun- um, ef ráð skortir í baráttunni við erfiðan verklýðsleiðtoga eða vinstrisinnaðan menntamann. Því má ekki gleyma að lög- regla og stjórnmálamenn nota jöfnum hönd- um það sem Bandaríkjamenn kalla sjálfir „frame-up“, skipulagðar og þaulhugsaðar ögranir. I gamalli kvikmynd frá Mutual, Greijan- um, er Charlie flæktur í hina fráleitustu at- burði, en kemur þá allt í einu auga á fagra konu í danssal. Hann gleymir í einni svipan öllum hættum sem yfir honum vofa og eltir fegurðardísina eins og dáleiddur ... En í föðurlandi Scarlettar er svo ljúfur innblást- ur engan veginn hættulaus. Það var hvorki skáldsaga eftir Dreiser né kvikmynd eftir Chaplín sem setti met þessarar hálfu aldar í bókaverzlunum og kvikniyndahúsum Bandaríkjanna, heldur A hverjanda hveli. Söguhetjan Scarlett O’Hara hefur orðið hin mikla fyrirmynd milljóna kvenna, sem að- hyllast „the American way of Iife“. Scarlett er rándýr sem beitir fegurð sinni af ráðnum hug á auðuga menn til þess að komast yfir fjármuni. Oftar en einu sinni hafði Scarlettunum tekizt að smeygja sér inn í líf Chaplíns. Þegar haráttan fyrir öðrum vígstöðvum stóð sem hæst og Chaplín bætti greinum og yfir- lýsingum við hina sögulegu ræðu sína, gerðist það í einkalífi hans að hann sleit öllu sambandi við konu nokkra, Joan Barry að nafni. I október 1942 réðst kona þessi inn til hans með skammbyssu í hendi og hótaði að drepa hann og fremja sjálfsmorð. En henni tókst ekki að endurnýja vinskap- inn. Átta mánuðum síðar kom hún aftur til Hollywood, brauzt inn í hús Chaplíns og olli slíku hneyksli að lögreglan varð að taka í taumana. Joan Barry skýrði frá þvf að hún væri þunguð, komin fimm mánuði á leið, og hún stefndi Chaplín fyrir rétt til þess að fá hann til að játa á sig faðernið. „Eftir ræðuna um aðrar vígstöðvar eru 95 af hverjum 100 blöðum andsnúin mér,“ sagði Chaplín um þessar mundir. ÖIl bandarísku stórblöðin gripu mál Jean Barrys fegins hendi. Mánuðum saman var Chaplín hrakyrtur á forsíðum blaðanna um land allt, kallaður þrælasali, legorðsmaður og ónáttúrlegur faðir. Þegar barnið fæddist í október 1943 leiddu hlóðrannsóknir í Ijós að Chaplín gat ekki verið faðir þess. En óvinir hans gáfust ekki upp. Ein málaferlin tóku við af öðrum, og að lokum, ári eftir frumsýninguna á Monsieur Verdoux, lauk þeim með því að Chaplín var „sekur“ fund- inn, án þess að honum væri heimilað að áfrýja. Þessar siðlausu ofsóknir hefðu ekki nægt til þess að lama hugrekki hans og traust, ef hin rangsnúna þróun bandarískra stjórn- mála hefði ekki jafnframt bundið endi á þær vonir sem hann hafði túlkað af hvað mestum þrótti í lokaræðu sinni í Einrœðis- herranum og herhvöt sinni um aðrar víg- stöðvar. Einn þeirra svokölluðu einangrunarsinna sem hann liafði ákært var á þessu tímabili orðinn forseti Bandaríkjanna. Varla var Hitler fyrr húinn að svipta sig lífi í Berlín og varla höfðu glæpafélagar hans fyrr verið 283
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.