Tímarit Máls og menningar - 01.09.1967, Side 102
Tímarit Máls og menningar
Til eru a. m. k. tvö Lyklafell á Islandi
önnur en það, sem höfundur nefnir. Annað
þeirra er rétt fyrir norðan Langjökul, hitt
gengur suður úr Oki, og heitir Lyklajells-
dalur milli þess og Fanntófells. Það er eft-
irtektarvert, að Lyklafell við Ok og Lykla-
fell á Dyravegi eru hæði á sýslumörkum,
og landamerki eru miðuð við Lyklafell
norðan Langjökuls.1 En þessi Lykla-nóln
og fleiri þurfa nánari athugunar við.
VígholtsstaSir heitir bær í Laxárdal, og
reynir höfundur að skýra það nafn (bls.
29). Hann nefnir nokkur dæmi um rithætti
fornbréfa, hið elzta, uislatzstade (acc.), frá
1355. Með hliðsjón af því og öðru svipuðu
frá 1397 kemur höfundi til hugar, að þarna
sé fólgið viðurnefnið *ví'slátr (sbr. spaklátr
og blíSlátr). Af öðrum dæmum má nefna
Vigsholltzstade 1375. Þess ber að gæta, að
öll dæmin úr Fornbréfasafni eru úr eftir-
ritum.
Ilöfundi er sýnilega ókunnugt urn, að á
Fellsströnd er hær með sama nafni, og er
hann þó raunar nefndur VíghólsstaSir nú
(sbr. Bœjatal á Islandi 1951 og 1961).
Fyrir vikið hefir höfundur misskihð Finn
Jónsson. Finnur segir ekki, að Vígholts-
sé annaðhvort orðið til úr Vígholms- eða
Vígólfs-. Hann á við það,2 að AM [þ. e.
Jarðabók Arna Magnússonar og Páls Vída-
látrum og nákunnugur staðháttum á þeim
slóðum, liefir tjáð mér, að Lyklasund sýn-
ist vera alveg lokað, unz að því er komið
úr hvorri áttinni sem er. Engin mið eru
tekin, þegar Lyklasund er farið, og ekki er
vitað um nein önnur Lykla-öinelni þar um
slóðir.
1 Svo virðist sem Krákur á Sandi sé
nefndur Lyklafell í landamerkjabréfi frá
1884 (sjá Árbók Ferðafélags íslands 1962,
hls. 119), en samkvæmt Uppdrœtti Islands
er Lyklafell nokkru austar en Krákur.
- Finnur Jónsson, „Bæjanöfn á Islandi",
líns] hafi Vígholts- á öðrum staðnum (þ. e.
í Laxárdal), en Víghólms- á hinum (þ. e.
á Fellsströnd), en hvort tveggja sé eflaust
afbökun úr Vígóljs-, sem standi í DI VII.3
Síðan bætir Finnur því við, að „Vislatz-
í D1 111“ sé talið afbökun af sama nafni,
en Vígólfr komi annars ekki fyrir nema
sem skröknafn í Sólarljóðum.4
Það má teljast öruggt, að Víghólsstaðir
á Fellsströnd hafi upphaflega heitið Víg-
ólfsstaSir. Það styðst ekki einungis við
skiptabréf Solveigar Björnsdótlur, heldur
kemur nafnið einnig fyrir í íslendinga
sögu Sturlu Þórðarsonar,5 og er þar greini-
lega átt við þennan sama bæ.6 Skýring
Finns Jónssonar var því ekki út í bláinn.
Ilann kallar báða bæina VígholtsstaSi, eins
Safn til sögu lslands, IV (Kaupmannahöfn
og Reykjavík 1907—1915), 450.
3 Hér er átt við testamentisbréf Solveigar
Björnsdóttur, en þar er ritað vigolfstader
(á Fellsströnd), samkvæmt DI VII, bls.
244.
4 I Ilrafns sögu Sveinbjarnarsonar (14.
kap.) er draummaður einn nefndur Ingólfr,
en í sumum handritum Vígólfr. í manna-
nafnaritgerðum Janzéns í Nordisk kultur,
VII, er bæði að finna sænska nafnið Vig-
hulv (bls. 265) og vesturnorræna nafnið
Vígulfr (bls. 93). Um hið síðarnefnda sjá
einnig Leiv Ileggstad, Gamalnorsk ordbok
med nynorsk tyding (Oslo 1930), undir
Víg:
5 Sturlunga saga. Jón Jóhannesson, Magn-
ús Finnbogason og Kristján Eldjárn sáu
um útgáfuna (Reykjavík 1946) I, 385.
61 ritgerð Hannesar Þorsteinssonar,
„Rannsókn og leiðréttingar á nokkrum
bæjanöfnum á íslandi", Arbók Hins ís-
lenzka fornleifafjelags, 1923, 45, er farið
bæjavillt, þar sein Vígólfsstaðir Sturlungu
eru sagðir vera sami bær og Vígholtsstaðir
í Laxárdal.
1%