Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Blaðsíða 18
Tímarit Máls og menningar
í skreytilist, silfursmíði, útskurði og vefnaði bar allt í sér arfinn frá fortíð-
inni, sem ennþá var íslenzk nútíð. Það er eftirtakanlegt að silfursmíðin sem
gat öðrum listum fremur blómgazt við erfiðar aðstæður eins og á mið-
öldum, var stunduð hérlendis langt fram á 19. öld. Utskurðurinn bar öll
merki barokksins og einnig rómansks stíls, sem var fyrir öldum aflagður
annars staðar. Sama máli gegnir um útsaum log skrautvefnað.
Því hljómaði hið nýja tjáningarform Jónasar Hallgrímssonar annarlega
í eyrum þeirra, sem vanizt 'höfðu 'hrynjandi rímunnar. Einföld og tær ljóð
hans um náttúruna og íslenzkt mannlíf, sveitasæluna og fegurð tungunnar
voru efcki metin hérlendis nema af fáum fyrst í stað og því lengra sem líður
á öldina því rómantískari verða þau í hugum lesenda. Aftur á móti kunnu
menn að meta rímur Sigurðar Breiðfjörðs og kvæði Bólu-Hjálmars, þótt sú
aðdáun nægði ekfci til þess að forða báðum þessum skáldum frá vesöld og
armæðu vegna bágborinna kjara. Fátækt þjóðfélag hafði lítinn skilning á
andlegum viðfangsefnum, og bar mjög á þessu eftir að menningarmiðstöð
íslenzks samfélags var efcki lengur í landinu. Stephan G. Stephansson talaði
af raunsæi þegar hann orti: „Útföl m)ndi ýta þorra / ættarbönd við sögu
Snorra / ef þau væru virt til króna / vegin út og seld.“ Með vaxandi borg-
arastétt um næstu aldamót og bættum efnahag myndast forsendur fyrir öðru
mati, þótt alltaf örlaði á vúigeru peningamati meðal tötraborgara.
Sumir telja að kveikja listar sé oft neikvæði hvers tíma, hvort sem hún
er hugsjónalegs eða trúarlegs eðlis og því stangist hún alltaf við ríkjandi
hefð og skoðanir og hljóti því að vekja andúð og tortryggni. Upplausnar-
einkenni miðaldaþjóðfélagsins hérlendis koma fram í aukinni einstaklings-
hyggju, efnalegri í formi kapitalísks reksturs og í bókmenntum með róman-
tíkinni. Hinar efnalegu og andlegu viðjar taka að losna fyrst í stað á út-
jöðrum samfélagsins í efnalegu tilliti, aftur á móti losnar fyrr um hinar
andlegu viðjar og sú lausn verður aflvaki og kveikja nýrrar meðvitundar
og tjáningarforms, en sú breyting gerist fyrst meðal stúdenta í Kaupmanna-
höfn. Sjálfstæðisbaráttan fór þar einnig fram eins og áður segir og því
dýpkar sú gjá sem myndast á 18. öld milli andlegrar viðleitni, sem mörkuð
var evrópskum áhrifum samtímans og samfélagsins úti hér, bæði andlega
og pólitískt.
Málvöndunarstefnan var einkum miðuð við vaxandi bæjamyndanir þegar
kemur fram um miðja öldina, þar gætti áhrifa dönskuskotins klúðursmáls,
sem var að nokfcru arfur frá alþjóðahyggju upplýsingarinnar á síðari hluta
18. aldar. Ádeilur í Fjölni og enn frekar leikritið Narfi og starfsemi Bók-
112