Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Page 55
Snjómokslur
BALDi: Þú hefðir kannski helzt viljað að hún væri kvenmaður?
Líkafrón þegir.
baldi : Það er hægurinn að kenna skóflunni, þegar menn geta ekki mokað!
Líkafrón þegir.
BALDI hœttir aS moka: Af hverju stendurðu svona og Ihlustar? Heyrirðu eitt-
hvað?
likafrón: Heyri? Nei. Það er nú meinið, að það er ekkert. Ekkert nema
suð fyrir hægra eyranu! Lítur til lofts. Heldurðu hann ætli að hvessa?
baldi : Hvessa? Ætti hann að hvessa núna, þegar hann er að gera logn! Lít-
> ur spyrjandi á Líkafrón. Af hverju skyldi hann hvessa?
líkafrón: Hann gerir það yfirleitt alltaf uppúr logni. Stutt þögn. Fyrst
kemur logn, og svo hvessir hann! Það er alltaf þannig. Það er lognið sem
er hættulegasta veðrið.
baldi gónir á hann: Það hef ég aldrei vitað fyrr!
líkafrón: Sannaðu til!
baldi: Ertu að segja að hann fari að hvessa?
líkafrón: Ég er ekki endilega að segja, að hann geri það strax. En hann
gerir það samt. Það kemur alltaf að því að hann gerir það!
BALDI: Jæja. Þá má hann líka gera það. Ekki fer ég að skipta mér af þvi, þó
hann geri það! Fer aftur að moka. Það mokar enginn fyrir mig, ef ég
geri það ekki sjálfur! Keppist við. Og sá sem á konu og bíl og ibúð í ðkuld,
kalli minn, hann verður að moka, skilurðu það! Moka og moka og moka, ef
hann á ekki að missa allt heila klabbið .... eins og það leggur sig, ha?
Skilurðu það? ... Þú heldur kannski að þetta sé gefið, ha? Þú heldur
kannski, að það þurfi ekki neitt til að halda þessu öllu gangandi .... og
borga af því á réttum tíma, ha? Stutt þögn. Og hvað heldurðu að það kosti
mann á ári í beinu vinnutapi bara að sofa! Hvað heldurðu um það! Hef-
urðu nokkurn tíma reiknað það út eftir næturvinnutaxtanum? Ég skal segja
þér það, kalli minn! Ég hef einu sinni vakað í fjóra sólarhringa samfleytt!
Segi og skrifa: fjóra! Kannski voru þeir fimm! Stutt þögn. Heldurðu að
ég hafi verið slappur á eftir, ha? Ég var steindauður, kalli minn! Stein-
dauður í marga daga, ef þú vilt vita það! Þagnar og tekur skorpu, hœgir
svo á sér. Það er Fíat sem ég á. Ég kem aldrei í hann núorðið! Konan
hefur hann! Tekur nýja skorpu og hœgir svo á sér. Ég á fjögurra herbergja
íbúð líka, þó við séum bara tvö! Eldhúsinnréttingin frá Þýzkalandi og
allar græjur . .. Stutt þögn. Átt þú íbúð, kalli minn?
LÍkafrón hrekkur við: Ha?
149
L