Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Page 76

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1970, Page 76
Fidel Caslro Ræða á aldarafmæli Leníns Nafn Leníns er öllum okkur hvað þekktast nafna. Ekki ætlum við að fara að hlaða lofi á Lenín. Við legðum ekki í þá áhættu að syngja honum neinn dýrðaróð, því að orð geta í rauninni ekki túlkað þá aðdáun sem við berum í brjósti. Mig langar að beina athygli að þeim tilfinningum, sem móta afstöðu okk- ar fólks til Leníns. Virðing sú og áhugi, hinn margvíslegi háttur sem þjóðin viðhefur til að láta í Ijós aðdáun sína, þakklæti og ást á Lenín, allt kemur það af sjálfu sér. Flokkur okkar, byltingarforustan og opinberar stofnanir eru ekki ein um það að auðsýna áhuga, því að sjálfvakinn áhugi gerir sín vart meðal þjóðarinnar allrar. Vottur þessi um ást á Lenín er þarafleiðandi ólíkur því, sem setur svip á fjölmarga sögulega merkisdaga í nafni arfhelgi og siðvenju. Við erum nú að minnast sögulegrar stundar, sem var mikilvæg öðrum fremur, fæðingardags eins af sérstæðustu mönnum sögunnar, manns sem var ólíkur ölluin öðrum að kostum, ekki aðeins hvað snerti ágæti hans sem einstaklings og byltingar- manns, heldur einkum vegna þeirra feykilegu áhrifa sem ævi hans og starf hafa haft og munu hafa á heimsbyggð alla. Með öðrum orðum, þá erum við að minnast hvað þýðingarmestu tímamótanna og á þann eina hátt sem við í rauninni erum fær um að gera það: með því að láta í Ijós einlægustu til- finningar okkar. Með sanni má segja, að Lenín hafi verið maður engum öðrum líkur. Ekki þarf annað en lesa sér til um ævi hans og starf og gera hlutlæga skilgreiningu á þróun hugsana hans og athafna á ferli hans öllum, til að komast að raun um, að hver og einn hlýtur að álíta hann öldungis einstæðan. Lenín átti sér að kennara grundvallanda marxismans, eða nánara sagt tvo, þá Karl Marx og Friðrik Engels. Enginn var betur undir það búinn en Lenín að skilja til hlítar dýpt marx- ískrar kenningar, ná tökum á kjarna hennar og meta til fulls gildi hennar. Enginn var færari en hann um það að túlka þessa kenningu og þoka henni á- 170
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.