Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Page 20

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Page 20
Tímarit Máls og menningar kvenfrelsis. Raunin hefur líka orðið sú, að einungis örfáir sósíalískir höf- undar hafa lagt í að taka þessi atriði til umræðu. Það var Fourier einn, sem taldi þessar tvær víddir frelsisins algerlega samstæðar, og hann lýsti með ljóðrænum orðum kynlífsparadís, þar sem skipti voru höfð á mökum (fram- leiðslusamfélögin frægu). Um langa hríð fóru ekki fram neinar umræður, sem því nafni má nefna, um þetta efni innan heimshreyfingar kommúnista, og var það mest fyrir áhrif „hins sósíalíska siðgæðis“ í Ráðstjórnarríkjun- um. í þessum efnum var Marx ekki eins frjálslyndur og Engels og aðhylltist á yngri árum hefðbundin viðhorf til þessara mála: „.. . hinn andlegi kjarni hjónabandsins er fólginn í því að hefja kynhvötina í æðra veldi með því að tengja hana einhverjum sérstökum aðila, og jafnframt táknar hjónabandið, að reistar eru lagalegar skorður gegn alræði eðlishvatanna. Upp af hjú- skapnum spretta þau tilfinningalegu tengsl, sem veita manneðlinu fullkomið aðhald og gæða lífið siðrænni fegurð.1'1 Engu að síður liggur alveg ljóst fyrir, að frá upphafi vega hefur ekki verið litið á konuna sem ættmóður eða framleiðanda einvörðungu, heldur engu síður sem tæki til svölunar kynferðislegum fýsnum karlmannsins. Þegar öllu er á botninn hvolft, má miklu fremur heimfæra gildandi reglur um eignar- hald upp á kynlífið en upp á framleiðslustarfsemi eða æxlun. Orðaforði okk- ar nútímamanna um kynferðismál er óljúgfróðast vitni um þetta, þar hirtist fullkomin orðaskrá hlutgervingarinnar. Síðar á ævinni gerði Marx sér auðvitað mætavel grein fyrir þessu: „Hjúskapur ... er ótvírætt eitt dæmi um óskoraðan einkaeignarrétt.“2 En hvorki Marx né arftakar hans reyndu nokkurn tímann að setja sér fyrir sjónir, hverjar afleiðingar þetta hefði fyrir sósíalismann eða hvaða áhrif þetta hefði á allar tilraunir til að kanna þjóð- félagsstöðu kvenna á viðhlítandi hátt. í tengslum við ofangreind ummæli lagði Marx áherzlu á, að kommúnismi myndi engan veginn fela í sér „þjóð- nýtingu“ á konum sem hverri annarri samfélagseign. Hann leiddi hins vegar hjá sér að ræða málið nokkuð frekar. Niðurstaða mín hér að ofan gefur tilefni til nokkurra athugasemda um málið frá sögulegu sjónarmiði. Sósíalistar hafa að vísu þagað þunnu hljóði um þessi mál, en það hafa frjálslyndir hugmyndafræðingar svo sannarlega ekki gert. Nýlega kom út bók, sem ber titilinn Eros Denied, og er hún samin af Wayland Young. Hann heldur í bók sinni fram þeirri skoðun, að í menn- 1 Karl Marx: Chapitre de mariage í Oeuvres philosophiqu.es I, bls. 25 (Oeuvres com- plétes, ed. Molinor). 2Karl Marx: Kommúnismi og einkaeignarréttur. 210
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.