Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Side 107

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1971, Side 107
Skemmtilegt er myrkriS því hvarfla að sér að ef til vill væri orsakalögmálið alls ekki staðhæfing um eitt né neitt, heldur einungis boðorð um leit að einhverri orsök hvers einasta atburðar sem fyrir kæmi.21 Áþekkri skoðun hafa ýmsir aðferðarfræðingar 20stu aldar haldið fram í ritum sínum. Endanleg skoðun Kants var þó sú að orsakalögmálið væri forsenda könnunar umheimsins með svipuðum hætti og tími og rúm væru forsendur skynjunarinnar. Og rökfærsla hans um þetta efni er sýnu skarplegri en hin fyrri um tíma og rúm þótt hún sé einnig mjög um- deild. Af þessum dæmum tveim úr riti Kants um skynsemina má tvennt ráða. Fyrst það að umtalsverð rök hníga að skoðun minni á sögulegum tengslum svonefndrar heimspeki og svonefndra vísinda. Síðan hitt að ágrip Jóhanns Páls af kenningu Kants sýnir það eitt hve ókunnugur hann er henni og hin- um ýmsu vandkvæðum hennar. Þegar hann víkur að veilum í heimspeki Kants nefnir hann það eitt að Kant hafi ekki komið auga á „heildarsamhengi í sam- bandi vitundar og veruleika11, hvað í ósköpunum sem það kann að vera. Sér í lagi hafi honum ekki tekizt „að finna viðhlítandi samnefnara fyrir þekking- arlega, siðræna og estetíska breytni mannsins“. Svo vel vill þó til að mati Jó- hanns Páls að „Hegel leysti þetta vandamál með því að gera hina mannlegu sjálfsveru að birtingarformi og nauðsynlegu stigi í framþróun æðri andlegs veruleika, sem einnig birtist í hinum hlutverulega heimi“ (JPÁ 171—172).22 Hvílíkur voða vandi! Og hversu dásamleg lausn! Það er að vísu rétt hjá Jóhanni Páli að þvílíkur „vandi“ og „lausnir“ hans voru helztu hugðarefni þýzkra frumspekinga eftir daga Kants, til að mynda þeirra Becks, Fichtes, Schellings og Hegels. En á slíkri uppskafningu og rugl- andi hafði Immanuel Kant engan áhuga. Þess var raunar getið í Tilraun um manninn að Kant hafði hugboð um hvernig landar hans áttu eftir að leika hugmyndir hans því að í ellinni las hann Frumspeki Fichtes eða Wissen- schajtslelire og sá þar með eigin augum útleggingu fræða sinna sömu ættar og þá að „reynslan sé reglubundin umsköpun veruleikans“. í opinberri yfir- lýsingu af þessu tilefni tók hann það skýrt fram meðal annars að kenningu sína um skynjunina beri alls ekki að skilja einhverjum óeiginlegum skilningi frá sjónarhóli frumspekikerfa sem helguð séu Andanum líkt og kerfi þeirra Becks og Fichtes. Þessar kenningar sínar og allar aðrar beri að skilja bók- staflega og aðeins frá einu sjónarmiði sem er „sjónarmið þeirrar heilbrigðu skynsemi sem öguð hefur verið við vísindalega hugsun“.23 í þessu sama plaggi lýsir Kant Fichte loddara sem misnoti gáfur sínar til heimspekilegra skrípaláta. Um þennan dóm Kants um Fichte þegir allur þorri 297
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.