Tímarit Máls og menningar - 01.07.1976, Qupperneq 64
Tímarit Máls og menningar
hinum þróttmesta karlmanni, enda er indíáninn afar stirfinn vitsmunalega
séð og á auk þess erfitt með að tjá sig í orðum.
En allt fór á besta veg. Og eftir þrjá daga, þegar lokið var kennslu
undirstöðuatriða kristinna fræða, hófust skriftirnar. Um leið dró sig til
baka talsverður hluti hópsins, sem lagt hafði stund á kverið, einkum þeir
sem höfðu þegar fengið mat eða klæði. Engu að síður var stór hópur eftir.
Klukkan var níu að morgni sólheits dags með heiðan himin. Skrifta-
börnin stillm sér upp í hægfara og hljóðláta biðröð, sem lá frá klaustur-
garðinum að skriftastólnum.
Faðir Espínoza gekk sér til hvíldar nokkra hringi um garðinn að áliðnu
kvöldi, eftir að teknar höfðu verið skriftir af öllum þorra trúaðra. Hann
var á leið afmr að skriftastólnum, þegar maður nokkur stöðvaði hann og
sagði:
Faðir, mig langar til að skrifta fyrir yður.
Fyrir mér sérstaklega? spurði guðsmaðurinn.
Já, fyrir yður.
Og hvers vegna?
Mér er það ekki Ijóst. Kannski vegna þess að þér eruð elsti trúboðinn
og þar af leiðandi líklega gæddur mestri gæsku.
Faðir Espínoza brosti:
Sonur minn, þetta lætur vel í eyra. Haldir þú þetta, og viljir þú að svo
sé, verði þá þinn vilji. Fömm.
Espínoza lét manninn ganga á undan, en fylgdi á hæla honum og virti
hann fyrir sér.
Faðir Espínoza hafði ekki gefið manninum neinn sérstakan gaum áður.
Þetta var maður hár vexti, grannur, kvikur í hreyfingum, dökkhærður og
með smttan svartan hökutopp. Augun voru svört og stingandi, nefið fín-
gert og varirnar þunnar. Hann talaði óaðfinnanlegt mál og gekk hrein-
lega til fara. A fómnum bar hann tágaskó, eins og aðrir, en berir fæturnir
í skónum voru vandlega hirtir.
Maðurinn kraup fyrir framan föður Espínoza, þegar í skriftastólinn var
komið og sagði:
Eg bað yður að taka við skrifmm af mér, vegna þess að ég er sann-
færður um það, að þér emð gæddur góðu viti og ríkum skilningi. Syndir
mínar eru smávægilegar. Eg er maður fremur hreinnar samvisku. En í
huga og hjarta mínu varðveiti ég hræðilegan leyndardóm, nístandi kvöl.
Ég þarf á aðstoð yðar að halda til að losna við hvort tveggja. Dragið ekki
158